Transfitusýrur ættu að hverfa 30. júlí 2011 20:15
Transfitusýrur ættu að hverfa úr í íslenskum matvælum innan nokkurra mánaða segir matvælafræðingur. Nýtt reglugerðarákvæði um hámarksmagn transfitusýra í matvælum tekur gildi eftir helgi. Frá og með næsta mánudegi verður óheimilt að markaðssetja matvæli sem innihalda meira en tvö grömm af transfitusýrum í hverjum hundrað grömmum af heildarfitumagni. Transfitusýrurnar er helst að finna í snakki, kexi og djúpsteiktum matvælum en neysla á þeim er talin auka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Ólafur Reykdal, matvælafræðingur, segir enga vöru þurfa að hverfa af markaði vegna reglubreytingarinnar. „Það er viðfangsefni í matvælaiðnaðinum að framleiða bæði bragðgóð og holl matvæli svo að þetta eru menn að leysa á ágætan hátt og það þarf alls ekki að vera að neytendur verði nokkurn hlut varir við þessa breytingu þegar skipt er um hráefni." Framleiðendum ber ekki skylda til að gefa upp magn transfitusýra í matvælum en neytendur ættu að geta lesið út frá merkingum hvort að þær séu til staðar. „Til dæmis ef að eina fituhráefnið myndi vera jurtaolía, þá ætti ekki að vera transfitusýrur til staðar," segir Ólafur. Reglugerðin gildir ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi, en það eru afurðir jórturdýra eins og kjöt- og mjólkurfita. Magn transfitusýra mældist lengi vel mjög hátt í íslenskum matvælum en verulega hefur dregið úr vægi þeirra á síðustu árum. „Þær ættu að hverfa á næstu mánuðum ef að þær eru ekki þegar horfnar úr matvælum sem matvælaiðnaðurinn framleiðir," segir Ólafur.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sjá meira