Úrúgvæ mætir Argentínu í 8-liða úrslitum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júlí 2011 09:28 Forlan og félagar eiga krefjandi verkefni fyrir höndum. Nordic Photos/AFP
Úrúgvæ vann 1-0 sigur á Mexíkó í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi og tryggði sér annað sætið í C-riðli. Chile vann dramatískan sigur á Perú í sama riðli svo ljóst er að Argentína og Úrúgvæ mætast í átta liða úrslitum. Alvaro Pereira var hetja Úrúgvæ í sigurleiknum gegn Mexíkó. Hann skoraði sigurmarkið eftir stundarfjórðung. Þrátt fyrir ágætisfæri tókst Úrúgvæ ekki að bæta við. Reyndar héldu áhorfendur að vængbrotið lið Mexíkó hefði jafnað metin mínútu fyrir leikslok en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Chile geymdi gulldrenginn Alexis Sanchez á bekknum fram í seinni hálfleik gegn Perú. Leikurinn var þrælskemmtilegur og bæði lið fengu fín færi. Eftir á að hyggja voru færi Perúmanna ekki síðri. Sigurmarkið kom undir lok leiksins, afar klaufalegt sjálfsmark eftir hornspyrnu. Bæði lið luku leik með tíu menn á vellinum eftir að Jean Beausejour hjá Chile og Giancarlo Carmona hjá Perú sáu rautt fyrir smávægileg handalögmál. „Ég óska Chile til hamingju, Claudio Borghi og leikmönnunum,“ sagði Sergio Markarian þjálfari Perú. „Að mínu mati og með fullri virðingu fyrir öðrum þátttakendum hefur Chile spilað bestu knattspyrnuna í riðlakeppninni.“ Enn er óvíst hverjum Chile og Perú mæta í næstu umferð. Það kemur í ljós í kvöld þegar keppni í B-riðli lýkur. Paragvæ og Venesúela mætast í fyrri leik kvöldsins klukkan 22.05 á Stöð 2 Sport 2. Í síðari leiknum kl 00:35 mætast svo Brasilía og Ekvador. Argentína og Úrúgvæ eru sigursælustu þjóðirnar í sögu keppninnar. Bæði lið hafa þó átt erfitt uppdráttar framan af móti en stigu upp þegar á þurfti að halda í lokaleik riðils síns.
Fótbolti Mest lesið Ronaldo sagður hafa hótað að siga lögreglunni á börnin Fótbolti Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Handbolti Rekinn fyrir að kyssa liðsfélaga sinn Sport „Ég get ekki pissað eins og ég gerði áður“ Sport Stóð uppi sem hetja Englands þrátt fyrir áfall skömmu fyrir mót Fótbolti Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Íslenski boltinn „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Íslenski boltinn Ætlar að vera á íslensku á TikTok Sport Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Körfubolti Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Körfubolti Fleiri fréttir KR missir sinn efnilegasta mann Liverpool nær í framherja frá félagi Beckham og Gary Neville Eddie Howe segir að Newcastle hafi ekki enn fengið tilboð í Isak Jóhannes skrifar undir hjá Kolding „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Alisson flaug heim vegna persónulegra mála Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Ronaldo sagður hafa hótað að siga lögreglunni á börnin Stóð uppi sem hetja Englands þrátt fyrir áfall skömmu fyrir mót Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda „Bara pæling sem kom frá Caulker“ „Vorum búnir að vera miklu betri“ „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Markasúpur í „Íslendingaslögum“ KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Nýtt útlit hjá Guardiola Aflýstu æfingaferð eftir hræðilegar fréttir að heiman Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga Sjá meira