Handhafar forsetavalds fengu fimm milljónir Heimir Már Pétursson skrifar 9. mars 2011 18:36
Kostnaður við ferðalög forsetahjónanna til útlanda á síðasta ári voru tæpar tíu milljónir króna, en forsetinn var þá samanlagt í um tvo mánuði í útlöndum í embættiserindum. Handhafar forsetavalds fengu greiddar rúmar fimm milljónir vegna fjarveru forsetans í fyrra. Forsetaembættið hefur svarað fyrirspurn frá fréttastofunni um ferðalög forseta Íslands og eiginkonu hans til útlanda árin 2009 og 2010 og kostnað vegna þeirra. Í svörum embættisins kemur fram að Ólafur Ragnar Grímsson var með 53 ferðadaga árið 2009, þar af voru 43 dagar í embættiserindum en 10 dagar í einkaerindum. Tekið er fram að af þessum 53 dögum séu 18 brottfarar- og heimkomudagar. Dorrit Moussaieff forsetafrú var 25 daga í útlöndum í embættiserindum. Kostnaður vegna þessara embættisferða; fargjöld forseta, gisting dagpeningar og annar ferðakostnaður var 3,8 milljónir króna og vegna fargjalda forsetafrúarinnar 575 þúsund og annar ferðakostnaður 23 þúsund en hún þiggur ekki dagpeninga. Heildar ferðaksotnaður forsetahjónanna árið 2009 var því 4,3 milljónir. Samkvæmt úttekt Fréttablaðsins fá handhafar forsetavalds; forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, hver um sig 20 þúsund krónur á dag þegar forseti er í útlöndum. samtals tæpar 3,2 milljónir árið 2009, rúm milljón á mann. Forsetinn ferðaðist öllu meira í fyrra. Þá voru ferðadagar vegna utanlandsferða 86, eða tæpir þrír mánuðir, þar af 62 dagar, eða um tveir mánuðir í embættiserindum. Þar af 24 brottfarar- og heimkomudagar. Ferðakostnaður vegna forsetans var 6,9 milljónir króna, kostnaður við fargjöld forsetafrúarinnar var 2,5 milljónir og annar ferðakostnaður vegna hennar 347 þúsund krónur. Eins og áður þáði hún enga dagpeninga og hefur reyndar aldrei gert samkvæmt svari forsetaembættisins. Heildarferðakostnaður forsetahjónanna árið 2010 var því 9,7 milljónir, rúmlega helmingi meiri en árið á undan. Greiðslur til handhafa forsetavalds vegna utanferða forseta árið 2010 voru samtals tæpar 5,2 milljónir króna.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira