Vilja lög til að losna við Ódrjúgsháls 27. janúar 2011 19:08
Þrír þingmenn hafa lagt til á Alþingi að sérstök lög verði sett til að losna við veginn um Ódrjúgsháls. Þeir staðhæfa að þetta sé brýnasta verkefni í vegagerð á Íslandi. Áform Vegagerðarinnar um að færa Vestfjarðaveg af Ódrjúgshálsi og Hjallahálsi niður á láglendi og þvert yfir tvo firði strönduðu með dómi Hæstaréttar fyrir fimmtán mánuðum, þar sem umhverfisráðherra mátti ekki nota umferðaröryggi sem rök í umhverfismati. Myndir flutningabílstjóra af veginum um Ódrjúgsháls gefa hugmynd um hvernig er að aka þarna um. Í myrkri og hálku að vetrarlagi er það enn hrikalegra og blá leiðbeiningaskilti ráðleggja ökumönnum að taka ekki beygjurnar nema á 20 kílómetra hraða. Í greinargerð lagafrumvarps er staðhæft að þarna sé brýnasta verkefnið í vegamálum á Íslandi, - fyrsti flutningsmaður, Einar K. Guðfinnsson, segir þetta versta kaflann á íslenska þjóðvegakerfinu. Hann sé bæði hættulegur og verði ófær á vetrum og jafnvel ófær yfir sumartímann. Hann hrynji í rigningu og uppfylli ekki nútímakröfur. Telja má líklegt að frumvarpið mæti andstöðu því þingmennirnir leggja til að staðið verði við fyrri áform um að leggja veginn um Teigsskóg, sem landeigendur og náttúruverndarsamtök hafa barist gegn. Einar segir það hins vegar einu færu leiðina, - útilokað sé að fara yfir hálsana og jarðgöng séu óraunhæf. Hann kveðst ekki trúa því að menn ætli sér að skilja íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum áfram eftir í fullkominni óvissu án þess að hafa nokkra von um að úr rætist. "Þeir sem ekki vilja fara þessa leið, þeir skulda íbúum á sunnanverðum Vestfjörðum svör við því hvaða aðrar leiðir séu færar," segir Einar.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira