Danir unnu Portúgali sannfærandi og komust á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2011 17:45 Danir fagna sigri í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Danir tryggði sér sigur í okkar riðli og sæti í úrslitakeppni EM næsta sumar með því að vinna sannfærandi 2-1 sigur á Portúgal á lokakvöldi undankeppni EM 2012. Portúgalir verða því að sætta sig við það að fara í umspilið. Danir voru ekki í alltof góðri stöðu fyrir haustleikina en unnu bæði Norðmenn og Portúgal á Parken sem vóg þungt. Michael Krohn-Dehli og Nicklas Bendtner komu Dönum í 2-0 á Parken í kvöld en Cristiano Ronaldo minnkaði muninn með frábæru marki beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma. Danir unnu fjóra síðustu leiki sína í riðlinum og þar á meðal sannfærandi sigra á höfuðandstæðingum sínum á Parken, fyrst 2-0 sigur á Noregi og svo sigurinn á Portúgölum í kvöld. Danir byrjuðu vel og Michael Silberbauer skoraði mark á 3. mínútu eftir mikinn hamagang í kjölfar aukaspyrnu en markið var dæmt af vegna brots á markverði Portúgala. Þetta var umdeildur dómur og fór ekki vel í fólkið á Parken en Danirnir gátu tekið gleði sína átta mínútum síðar þegar Michael Krohn-Dehli skoraði og nú var markið dæmt gilt. Krohn-Dehli, sem er leikmaður Bröndby, fékk þá boltann frá Christian Eriksen út á kanti, lék inn í teiginn og skoraði með skoti sem fór af varnarmanni og í bláhornið. Christian Eriksen átti líka mikinn þátt í öðru markinu sem Nicklas Bendtner skoraði af stuttu færi á 62. mínútu eftir sendingu frá Dennis Rommedahl. Cristiano Ronaldo minnkaði muninn með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma en nær komust Portúgalir ekki.
Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Sjá meira