Ekkert óeðlilegt við fjölda öryrkja á Litla-Hrauni 11. janúar 2011 18:39
Fangi á Litla-Hrauni telur ekki óeðlilegt að öryrkjar séu mun fleiri í hópi fanga en úti í þjóðfélaginu. Margir fangar komi inn á Hraunið úr mikilli neyslu, glími við margskonar fíkn eða geðsjúkdóma. Þá búi fangar við aðstæður sem skapi þunglyndi. Nær helmingur allra fanga á Íslandi er á örorkubótum frá ríkinu. Þeir halda fullum örorkugreiðslum fyrstu fjóra mánuði sína á bak við lás og slá, eftir það fá öryrkjar í hópi fanga vasapeninga frá Tryggingastofnun en fullir vasapeningar eru tæpar 42 þúsund krónur. Meðalþóknun fanga á síðasta ári fyrir vinnu sína var um 32 þúsund krónur á mánuði. Sú þóknun skerðir ekki vasapeningana. Þess má geta að fangar eru ekki rukkaðir um meðlag, þeir semja um það þegar afplánun lýkur og þeir greiða ekkert fyrir lausasölulyf og læknisþjónustu. Fregnir okkar af háu hlutfalli öryrkja í hópi fanga hafa vakið furðu sumra, fangelsismálastjóri hefur sagt út í hött að 50% af föngum geti verið öryrkjar, og telur að þeir séu að spila á kerfið - á meðan forstjóri Tryggingastofnunar telur hlutfallið ekki óeðlilegt. Fréttastofa ræddi í dag í síma við Árna Ásbjörnsson fanga á Litla-Hrauni sem hlaut 9 ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að Papeyjarsmyglinu. Árni segir hlutfallið ekki óeðlilegt, margir fangar komi inn á Hraunið úr mikilli neyslu og mun hærra hlutfall fanga en fólks almennt eigi við ýmiss konar fíknir og geðsjúkdóma að stríða. Þá búi fangar við aðstæður sem skapi þunglyndi og komi margir frá brotnum heimilum. Aðspurður hvort honum þyki eðlilegt að menn þiggi örorkubætur á sama tíma og þeir afpláni refsingu fyrir glæpi, í fangelsi þar sem þeim sé séð fyrir fæði og húsnæði svaraði Árni: "Kannski ekki". Hitt sé óeðlilegt að fangar vinni inni í fangelsum og fái fyrir það þóknun en ekki laun, segir Árni. Það þýði að fangar séu ekki slysatryggðir við vinnu sína og safni engum lífeyrisréttindum - eins og þeir myndu gera hétu tekjur þeirra laun í kerfinu. Sem raunar, eins og hann bendir sjálfur á, gæti hugsanlega haft þá einkennilegu hliðarverkun að fangar gætu öðlast rétt til atvinnuleysisbóta.
Papeyjarmálið Fangelsismál Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira