Innlent

Uppvakningar safna fyrir Fjölskylduhjálp Íslands

Uppvakningur.
Uppvakningur.
Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu næstkomandi fimmtudag. Sýningin verður þó með breytt sniði, því það kostar ekkert inn á sýninguna. Hinsvegar verður tekið á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands.

Í verkinu er endursagt margt það óhugnanlegasta úr samtíma okkar og horfst í augu við hvernig samfélagið tekur á sársauka sem mannanna verk valda. Það er því vel við hæfi að lokasýning þessa verks sé helguð samtökum sem leggja sig fram um að hjálpa þeim sem minna mega sín í samfélaginu.

Leikritinu hefur verið misvel tekið af gagnrýnendum en Zombíljóðin er úr smiðju Borgarleikhússins og Mindgroup.

Á undan komu Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Þremenningarnir sem stóðu að þeim verkum eru Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson.

Í þessari sýningu hafa þeir fengið liðsstyrk Halldóru Geirharðsdóttur sem skrifar og flytur verkið með þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×