Mönnum vísað frá er þeir mæta í afplánun 25. janúar 2011 11:00 Meðal þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni eru tveir sautján ára unglingar. „
Öll fangelsin eru yfirfull, tvímennt í klefa þar sem það er mögulegt og við höfum þurft að vísa mönnum frá sem mætt hafa til afplánunar auk þess sem fangar hafa verið vistaðir á lögreglustöðvum.“ Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. Páll segir að brotamenn hafi verið boðaðir til afplánunar með góðum fyrirvara svo þeir gætu undirbúið sig. Þegar á hafi reynt hafi gæsluvarðhaldsfangar verið komnir í klefana og mennirnir því ekki getað hafið boðaða afplánun. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerist það mörgum sinnum í viku að boðaðri afplánun sé frestað. Slíkt getur tekið á fyrir brotamenn því þeir þurfi ekki bara sjálfir að undirbúa sig heldur einnig fjölskyldur og jafnvel vinnuveitendur. Að undanförnu hafa óvenjumargir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Páll segir stöðuna nú keyra langt úr hófi fram. „Ástandið er óþolandi,“ segir hann. „Nú sæta tuttugu og fjórir einstaklingar gæsluvarðhaldi.“ Páll segir öll einangrunarpláss fullsetin. Á síðustu tíu dögum hafi þurft að vista átta gæsluvarðhaldsfanga á lögreglustöð. „Við höfum lengi starfað undir miklu álagi en nú er svo komið að það álag verður ekki aukið,“ segir hann. „Skiljanlega gera lögmenn þeirra sem vistaðir eru í fangaklefum lögreglu athugasemdir við það en við höfum einfaldlega ekkert val þegar allt er troðfullt.“ Páll minnir á að lengi hafi staðið til að byggja nýtt fangelsi. „Ef fangelsið verður ekki byggt þegar í stað lendum við í enn frekari vandræðum.” -jss
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Fleiri fréttir Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Sjá meira