Forsætisráðherra haldi ró sinni 29. janúar 2011 17:52 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mynd/GVA
Samtök atvinnulífsins telja brýnt að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, haldi ró sinni. Hún hafi ráðist með fordæmalausum hætti á samtökin og eitt aðildarfélag þess, Landssamband íslenskra útvegsmanna, á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. LÍÚ gagnrýnir rangfærslur í máli Jóhönnu. Jóhanna sagði engan vilja bera ábyrgð á því að völdin fari í hendurnar á íhaldsöflunum, þar sem sérhagsmunir forréttindastéttanna taki aftur völdin. Á liðnum dögum hafi þjóðin verið minnt íllþyrmilega á tilvist þessara hagsmunagæsluafla, bæði með gíslatöku LÍÚ á kjarasamningum og andstöðunni við stjórnlagaþingið. Sem snúist aðeins um eitt, baráttuna um auðlindir þjóðarinnar. „Auðlindirnar sem þeir vilja áfram eiga og nýta fyrir sig sjálfa, en við jafnaðarmenn viljum að þjóðin eigi og nýti." Jóhanna sagði það eins eins ljóst í hennar huga, eins og dagur rís að morgni, að aðeins meirihlutastjórn jafnaðarmanna mun tryggja að nýtt og sanngjarnara stjórnkerfi fiskveiða verði að veruleika og að skýrt verði í stjórnarskrá að auðlindirnar séu sameign allra landsmanna og arðurinn af auðlindunum renni til þjóðarinnar. Vegna ræðu Jóhönnu hafa nú bæði SA og LÍÚ sent frá sér yfirlýsingar. „Árásir forsætisráðherra á Landssamband íslenskra útvegsmanna eiga sér engar málefnalegar forsendur. Sjávarútvegsfyrirtæki hafa starfað eftir lögum um stjórn fiskveiða sem voru mótuð í tíð ríkisstjórna sem forsætisráðherra sat í og ber því mikla ábyrgð á," segir í tilkynningu sem Vilhjálmur Egilsson, framvæmdastjóri SA, sendi fjölmiðlum í dag. Þar segir að löggjöfin um stjórn fiskveiða hafi löngum verið deiluefni. „En endurskoðunarnefnd á vegum núverandi ríkisstjórnar náði víðtæku samkomulagi um grundvallarbreytingu á stjórnkerfinu með aðild stjórnarflokkanna, tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna og allra helstu hagsmunasamtaka sjávarútvegsins bæði fyrirtækja og starfsfólks." Í yfirlýsingu LÍÚ segir meðal annars að samtökin hafi aldrei efast um forræði íslenska ríkisins á fiskveiðiauðlindinni og rétt ríkisins til að setja reglur um stjórn fiskveiða á grundvelli fullveldisréttar þess. „Samningar um tímabundin afnot útgerða af aflahlutdeild gegn gjaldi, undirstrikar þetta forræði. Á sama hátt eiga íslenskar útgerðir stjórnarskrárvarinn rétt til afnota að aflahlutdeild sinni."
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira