Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa komið í veg fyrir ríkisábyrgð 13. nóvember 2011 19:00
Jón Óttar Ragnarsson, stofnandi Stöðvar 2, fullyrðir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi með pólitískum vélabrögðum sölsað stöðina undir sig í lok árs 1989 þegar þeir misstu fyrirtækið. Flokkurinn hafi komið í veg fyrir að ríkisábyrgð fengist á lán til Stöðvarinnar. Jón Óttar talar um þá sem lokasprettinn, síðustu mánuðina sem liðu áður en stofnendur og Stöðvar 2 misstu yfirráð yfir fyrirtækinu. Þá var farið að harðna á dalnum fjárhagslega og eigendurnir leituðu til ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar um ríkisábyrgð á láni til fyrirtækisins, sem stjórnin féllst á að veita. En yfirlýsing um ríkisábyrgð nægði ekki Verzlunarbankanum, sem þá var viðskiptabanki fyrirtækisins og laut að sögn Jóns Óttars stjórn Sjálfstæðisflokksins. „Þá gerist það sem ég ætlaði nú ekkert að segja frá nema í ævisögunni minni. Þegar maður horfir til baka er þetta náttúrulega bara pólitískt plott innan Sjálfstæðisflokksins. Það sem þeir gera er að segja; það er ekki nóg. Það verður að semja bráðabirgðalög," segir Jón Óttar. Ekkert varð hins vegar úr setningu bráðabirgðalaga, en fjölmiðlar greindu á þeim tíma frá að stjórnarþingmenn hefðu meðal annars lagst gegn því. „Þó maður sæi það ekki þarna inni í miðjum blindbyl, þá er þetta alveg augljóst þegar maður horfir til baka. Það leikur enginn vafi á því að það voru háværar raddir innan Sjálfstæðisflokksins um að taka stöðina yfir." Fréttastofa bauð Þorsteini Pálssyni, þáverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, að tjá sig um ummæli Jóns Óttars, en hann afþakkaði. Þriðji hluti Ljósvakavíkinga, heimildarmyndar um sögu Stöðvar 2, verður sýndur strax að loknum fréttum, en þar er fjallað nánar um þessa örlagaríku mánuði í sögu stöðvarinnar.
Mest lesið Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Áfram gýs úr einum gýg Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Fleiri fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gýg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Sjá meira