Isavia gert að greiða bætur fyrir kynferðislega áreitni starfsmanns Valur Grettisson skrifar 9. febrúar 2011 15:15 Maðurinn var yfirmaður öryggissviðs Keflavíkurflugvallar. „
Dómurinn var að falla í dag," svarar Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, þegar fréttamaður spurði hana hvort það væri eðlilegt að starfsmaður, sem beitti undirmanns sinn kynferðislegri áreitni, væri enn við störf hjá fyrirtækinu. Dómur féll í dag í Héraðsdómi Reykjaness þar sem Isavia var dæmt til þess að greiða konunni 1,8 milljónir vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu starfsmannsins í mars 2009. Málavextir voru þeir að maðurinn, sem var þá framkvæmdastjóri öryggissviðs Keflavíkurflugvallar, særði blygðunarkennd konunnar með því að vera nakinn í heitum potti í vinnuferð sem þau fóru í. Atvikið átti sér stað í sumarbústað í Grímsnesi, en auk konunnar og yfirmannsins, var annar starfsmaður með í för. Yfirmaðurinn reyndi einnig að komast inn í herbergi konunnar þrátt fyrir að hún var búin að setja ferðatösku fyrir hurðina en hún gat ekki læst henni. Eins og fyrr segir er starfsmaðurinn enn að störfum hjá fyrirtækinu á meðan konan lét af störfum eftir atvikið þar sem hún mætti aðgerðarleysi yfirmanna í kjölfarið og ábyrgð hennar í starfi minnkuð án skýringa. Yfirlýsingar er að vænta frá Isavia síðar í dag.
Tengdar fréttir Dæmdar bætur fyrir kynferðislega áreitni - gerandi enn að störfum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrirtæki til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,8 milljón króna fyrir kynferðislega áreitni og einelti á vinnustað. 9. febrúar 2011 13:39 Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Sjá meira
Dæmdar bætur fyrir kynferðislega áreitni - gerandi enn að störfum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrirtæki til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,8 milljón króna fyrir kynferðislega áreitni og einelti á vinnustað. 9. febrúar 2011 13:39