Íslendingar flykkjast til Tælands 26. janúar 2011 17:15 Íslendingar eru spenntastir fyrir ströndinni í Tælandi. Mynd/AFP
Á vef íslensku flugleitarinnar Dohop leita þúsundir manna að flugi á hverjum degi. Í gögnum Dohop er að finna áhugaverðar staðreyndir um ferðahegðun Íslendinga sem heimsækja vefinn. Tíunda hvers mánaðar birtir fyrirtækið ferðavísa með tíu vinsælustu áfangastöðunum. Tæland komst efst á blað í sumar og hélt sætinu í allt haust. „Bangkok vermdi efsta sætið frá því í sumar. Kaupmannahöfn komst í toppsætið í desember en engu að síður er augljóst að aukinn áhugi er á ferðum til Tælands. Bangkok féll einungis niður um tvö sæti. Aðrar borgir sem lenda ofarlega á lista eru London, Orlando, Ósló og New York sem kemur kannski ekki á óvart," segir Davíð Gunnarsson, sölu- og markaðsstjóri Dohop, og bendir á að sólin virðist auk þess heilla sem fyrr og eru strandbæir eins og Alicante og Las Palmas ofarlega á lista. Dohop er íslenskt fyrirtæki sem rekur ferðaleitarvélina Dohop.is. Þar er hægt að finna flug, hótelgistingu og bílaleigubíla. „Sérstaða Dohop felst í því að leitin tengir saman flugleiðir sem eru annars ótengdar og sýnir ódýrar tengingar sem annars væri erfitt að finna," segir Davíð. Hann segir flugleitarvélina, sem var stofnuð árið 2004, bera saman meira en 600 flugfélög og tugi ferðaskrifstofa á netinu. Hægt er að leita beint í Dohop hér á Vísi en leitarvélin er meðal annars staðsett vinstra megin við íþróttahluta forsíðunnar.Davíð Gunnarsson hjá Dohop. Mynd/GVA„Dohop er dæmigerð flugleitarvél og virkar eins og Google," útskýrir Davíð. „Hún finnur ódýr flug og vísar svo á aðra vefi þar sem hægt er að bóka. Hún er frábrugðin stórum vefjum eins og Expedia, ef við tökum hann sem dæmi, en hann nær aðeins til takmarkaðs fjölda flugfélaga og hótela. Við leitum hins vegar hjá eins mörgum flugfélögum og við getum. Við höfum enga hagsmuni af því að sýna eitt flugfélag fram yfir annað, heldur sýnum öll flugfélög óháð því hvort þau borga okkur þóknun fyrir að vísa gestum til þeirra eða ekki. Við getum fundið tengingar á milli hefðbundinna flugfélaga eins og Lufthansa, British Airways og KLM við lággjaldafélög eins og EasyJet, Ryanair og Iceland Express en þannig er oft hægt að finna ódýrari leið en ella." Davíð segir Dohop aðallega þekkt sem flugleitarvél en að á vefnum séu auk þess öflugar hótel- og bílaleitarvélar. „Við gerðum nýverið samning við ástralska fyrirtækið Hotels Combined um rekstur hótelleitar á vef Dohop. Hotels Combined hefur um árabil verið leiðandi í þróun samanburðarleitarvélar fyrir hótel á vefnum en hún er sambærileg flugleit Dohop. Við höfum látið þýða hótelleitarvélina á íslensku og sýnir hún verð frá þrjátíu söluaðilum um allan heim. Þar á meðal eru Hotels.com, Expedia, Booking.com og HRS. Hinn síðastnefndi er samstarfsaðili Icelandair þegar kemur að hótelbókunum en þar sem leitarvél Dohop ber verð HRS saman við 29 aðra söluaðila má áætla að við séum að bjóða hagstæðasta verðið hverju sinni." vera@frettabladid.is
Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Fleiri fréttir Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Sjá meira