Innlent

Heimilisfólk á Hrafnistu með hatta og hárkollur

Heimilisfólk á Hrafnistu er duglegt að taka þátt í félagsstarfi. Hér er það í leikfimi
Heimilisfólk á Hrafnistu er duglegt að taka þátt í félagsstarfi. Hér er það í leikfimi
Heimilismenn og starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík slá upp hattaballi á morgun, öskudag, klukkan hálf tvö.

 Af því tilefni er vinnustofan á 4. hæð með opið verkstæði í dag þar sem heimilismönnum og starfsmönnum gefst kostur á að koma og spreyta sig áfram í hatta- og hárkollugerð fyrir ballið.

Dansleikurinn á morgun verður haldinn í miðrýminu á 4. hæð.

Fyrir dansi leika Böðvar Magnússon og félagar í Hrafnistubandinu. Fyrir hádegi koma börn frá Ásborg í heimsókn á allar deildir Hrafnistu og syngja fyrir heimilisfólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×