Á annað hundrað lífrænir neytendur á stofnfundi 8. mars 2011 14:22 Oddný Anna Björnsdóttir, hvatamaður að stofnun samtakanna
Vel á annað hundrað manns sóttu stofnfund Samtaka lífrænna neytenda í Norræna húsinu í gærkveldi. Undibúningur að stofnun samtakanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði en mikill áhugi vaknaði á stofnun formlegra samtaka eftir að óformleg samtök lífrænna neytenda fengu góðar undirtektir á Facebook. Oddný Anna Björnsdóttir, hvatamaður að stofnun samtakanna flutti inngangsorð þar sem hún gerði grein fyrir ástæðum þess að samtök af þessu tagi væru nauðsynleg og lýsti markmiðum samtakanna sem eru að; efla miðlun upplýsingar um lífrænar afurðir og framleiðslu þeirra, hvetja til aukinnar neyslu á vottuðum lífrænum vörum, vekja athygli á kostum lífrænna aðferða, vekja athygli á nauðsyn bættrar meðferðar búfjár, veita markaðinum aðhald um bættar merkingar og aukið framboð lífrænna afurða og stuðla að heilbrigðum lífsstíl og heilnæmu umhverfi.Hamingjuóskir frá ráðherra Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var ein þeirra sem ávarpaði fundinn og sagði hún frá því að ráðherra hafi um langa hríð verið mikill áhugamaður um lífræna ræktun og óskaði hún fundarmönnum, fyrir hönd ráðherra, til hamingju með stofnun samtakanna og óskaði góðs þeim gengis í framtíðinni. Fundarmönnum gafst síðan kostur á að skrá sig í í starfshópa og kynna sér, prófa og smakka lífræna framleiðslu og fá upplýsingar um lífrænar landbúnað og framleiðsluaðferðir í fordyri Norræna hússins þar sem sett hafði verið upp kynningarmiðstöð og kynningarstandar hinna ýmsu bænda, framleiðenda og innflytjenda.Hundrað skráningar í tíu starfshópa Geysigóð þátttaka var í starfshópana þar sem yfir hundrað skráningar voru í tíu hópa. Starfshóparnir munu taka strax til starfa og þeir sem skráðu sig í framkvæmdanefnd munu halda utan um hópavinnuna og gera tillögur að sameiginlegum verkefnum hreyfingarinnar. Á nýrri heimasíðu Samtaka lífrænna neytenda, lifræn.is, mun innan tíðar vera hægt að fá nánari upplýsingar.Styðja þingsályktunartillögur Í lok fundar var lögð fram tillaga að fyrstu stuðningsyfirlýsingu samtakanna en hún er við tvær þingsálykturnartillögur sem nú liggja fyrir Alþingi: Þingsályktunartillaga um mótun framleiðslustefnu í lífrænum landbúnaði og þingsályktunartillaga um útiræktun erfðabreyttra lífvera. Yfirlýsingin var samþykkt samhljóða. Sjá nánari upplýsingar um fundinn á vef Náttúrunnar.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira