Vilja endurskrifa fiskveiðistjórnunarfrumvarpið fyrir ráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. september 2011 11:20 Lilja Rafney Magnúsdóttir er formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Mynd/ vilhelm.
Formaður og varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis hafa lýst sig reiðubúna til þess að skrifa frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu upp að nýju í umboði ráðherra. Segja þær fordæmi fyrir þessu, meðal annars við smíði frumvarpa í stjórnarráðin. Í bréfi sem þær Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, og Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður nefndarinnar, hafa sent fjölmiðlum leggja þær til fjölmargar breytingar á frumvarpinu sem þær segja nauðsynlegt að gera. Meðal annars að tryggt verði að handhafar nýtingarsamninga eigi þess kost að bjóða í aflaheimildir í leigupotti og kvótalitlar útgerðir eigi þess kost að bjóða í nýtingarsamninga. Að sama skapi verði leiguhlutinn aukinn að verulegum mun, t.d. í 20-30% þeirra aflaheimilda sem til ráðstöfunar er hverju sinni. Þá leggja þær til að horfið verði frá hinum svokallaða byggðapotti, sömuleiðis rækju- og skelbótum. Einnig vilja þær að strandveiðar verði gefnar frjálsar í skilgreindri strandveiðihelgi að uppfylltum skilyrðum sem nánar eru skilgreindar í greinargerðinni. Þær Lilja Rafney og Ólína vilja jafnframt að skerpt verði á markmiðsetningu og útfærslu á takmörkunum framsals aflaheimilda, einkum varðandi leiguframsal, að kvótaþing verði skilgreint betur og ígrundaðar vel þær aðferðir sem viðhafðar verða við uppboð aflaheimilda og að allur afli verði boðinn á innlendan markað.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira