Díoxín enn yfir mörkum í Vestmannaeyjum 19. apríl 2011 14:22 Vestmannaeyjabær mun áfram vinna að úrbótum með sérstaka áherslu á að ná niður rykmengun Mynd / Óskar
Mæling umhverfisstofnunar á mengun í Sorporkustöð Vestmannaeyja bendir til þess að all nokkur árangur hafi náðst í að hefta útblástur þeirra mengandi efna sem getið er um í starfsleyfi stofnunarinnar. Af þeim viðmiðunum sem getið er um í starfsleyfi stöðvarinnar er það einungis ryk sem er yfir mörkum. Í viðbót við þau viðmið sem gefin eru í starfsleyfi Sorporkustöðvarinnar var mælt brennisteinsdíoxíð, vetnisflúoríð, nituroxíð og díoxín. Í öllum tilvikum eru mælingar innan viðmiða ef frá er skilið mæling á díoxíni sem enn er hátt yfir viðmiðum. Sýni sem Matvælastofnun tók úr búfé á Heimaey reyndist hinsvegar ekki vera með díoxínmengun miðað við gildi sem fengust í mælingum á kjöti sem fóru fram víðs vegar um landið árin 2003 og 2004.Aðgerðir til að sporna við mengun Í morgun funduðu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og Umhverfisstofnunar, meðal annars vegna niðurstöðu þessara mengunarmælinga í Sorporkustöð Vestmannaeyja sem unnin var í mars 2011 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Einnig var rætt um mælingar á díoxsíni í sauðfé sem unnin var af Matvælastofnun Íslands, og starfsleyfi Sorporkustöðvar Vestmannaeyja. „Vestmannaeyjabær mun áfram vinna að úrbótum með sérstaka áherslu á að ná niður rykmengun. Til þess að flýta þeirri vinnu og gera hana markvissari hefur Vestmannaeyjabær samið við Þór Tómasson sérfræðing hjá verkfræðistofunni Mannvit. Á yfirstandandi ári mun Vestmannaeyjabær draga úr heildarlosun allra mengandi efna um að minnsta kosti 60%. Þaðan mun áfram verða haldið ef þörf verður á þar til fullum árangri er náð. Meðal þess sem unnið er að er frekari flokkun sorps, kaup á auknum mengunarvörnum við útblástur, bæting á brensluferli og ýmislegt fleira," segir í tilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.
Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fleiri fréttir Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Sjá meira