Betlaði og bjó með hippum 16. nóvember 2011 13:00 Þórarinn Leifsson rifjar upp viðburðaríkan tíma í lífi sínu á Spáni og í Marokkó í bókinni Götumálaranum. Þar kynntist hann alls kyns skrautlegu fólki og vann fyrir sér með því að betla og mála á götum úti. Fréttablaðið/GVA
Götumálarinn, skáldævisaga Þórarins Leifssonar, er ein þeirra bóka sem hefur skolað á land í jólabókaflóðinu í ár. Þar kveður við annan og myrkari tón hjá Þórarni sem er helst þekktur fyrir barnabókaskrif. Blaðamaður stenst ekki mátið og spyr hvort höfundur sé með bersöglum lýsingum úr eigin lífi, frásögn af ungum manni í sjálfsleit í Marokkó, að ganga gegn þeirri hugmynd að barnabókahöfundar vilji halda á lofti gljáfægðri ímynd af sjálfum sér. „Alls ekki. Ímynd mín er í fyrsta lagi hvort eða er ekkert óflekkuð enda vita þeir sem til þekkja að ég var sprækur unglingur og hef alltaf verið á jaðrinum. Síðan held ég að flestir átti sig á að barnabækur skrifar fullorðið fólk sem er með einhverja lífsreynslu að baki. Tökum sem dæmi Ole Lund Kirkegaard, höfund Fúsa froskagleypis. Hann fór ekkert í grafgötur með fjölskrúðugt heimilislíf og ótæpilega drykkju og drakk sig loks í hel." Ertu með þessari fyrstu fullorðinssögu þinni að segja skilið við barnabókaskrif? „Nei. Ég hef gefið út bækur á tveggja ára fresti og í hvert skipti reyni ég eitthvað nýtt nema ljóðagerð, ég er alveg afleitt ljóðskáld. Bækurnar sem ég gaf út árin 2007 og 2009 voru til að mynda frekar ólíkar og helsti munurinn á þeim og Götumálaranum er sá að hún er hvorki ætluð börnum né viðkvæmum." Enda litrík bók og uppfull af opinskáum lýsingum. Er hægt að líta á hana sem uppgjör við fortíðina? „Sagan byggist auðvitað á minni reynslu sem götumálari og betlari á Spáni og í Marokkó um miðjan 9. áratuginn. Svona tímabil rótleysis sem flestir upplifa einhvern tímann á lífsleiðinni og margir vilja gleyma. Þegar ég fann fyrir tilviljun póstkort og bréf frá þessum tíma ákvað ég þó að horfast bara í augu við hann, skrifa söguna og fannst það gott. Þetta er svo bitastæð saga að ég varð að gera henni skil." Hvernig hafa viðbrögðin verið? „Mjög góð. Sérstaklega frá lesendum sem hafa lent í svipuðu. Auður [Jónsdóttir] konan mín kolféll líka fyrir henni. Hún las yfir meðan ég var að skrifa og gerði athugasemdir. Yfirleitt liggjum við yfir bókum hvort annars þannig að þær skilast sífellt kláraðri út úr húsi. Erum eiginlega eins og lítið forlag. Bráðum þurfum við kannski ekkert á slíku að halda," segir hann og hlær. En lífsmátinn sem þú lýsir í bókinni, heillar hann ekkert í dag? „Nei, nú er ég bara nýbakaður faðir og hef ekki snert á eiturlyfjum í 20 ár. Og nú þegar bókin er komin út fara næstu mánuðir í heimilisstörfin svo Auður geti unnið að sínum skrifum. Það er eiginlega eina reglan á heimilinu. Að öðru leyti ræður óreglan ríkjum. Bóhemalífið hefur vikið fyrir heimilislífi. Ég er mjög sáttur við það." roald@frettabladid.is
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira