Efast um réttmæti sorphirðugjalds 10. mars 2011 14:05 Júlíus Vífill Ingvarsson vill faglegt álit á málinu Mynd úr safni / GVA
Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að fá faglegt álit á því hvort heimilt er að krefja fólk um að færa ruslatunnur sínar fyrir losunardag ef þær eru almennt geymdar lengra en fimmtán metrum frá sorphirðubíl. Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hjá borginni þarf fólk að greiða 4800 krónur í sorphirðugjald ef ruslatunnur eru lengra í burtu en þessu nemur. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði til á fundi skipulagsráðs í gær að óskað yrði eftir því að fá faglegt álit byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra á málinu. Ráðið gerði tillöguna að sinni og samþykkti. Júlíus Vífill hefur miklar efasemdir um nýtt fyrirkomulag. „Mér sýnist málið bara ekki svona einfalt. Í byggingarreglugerð og ýmsum deiliskipulagsáætlunum má víða finna skýrar reglur varðandi staðsetningu sorpíláta. Þar að auki er spurning um hver eigi að bera kostnað sem hlýst af slíkum tilfæringum. Tæplega er sanngjarnt gagnvart húseigendum að kveða á um staðsetningu sorpíláta í byggingarleyfi og koma svo fyrirvaralaust og rukka um aukagjald sem byggir á staðsetningu þessara sömu sorpíláta. Eðlilegt hefði verið að skipulagsráð hefði fjallað um málið áður en það var afgreitt og það fengi vandaðri meðferð," segir Júlíus Vífill. Í samþykkt skipulagsráðs segir meðal annars: „Mál þetta var ekki verið lagt fyrir skipulagsráð til umsagnar sem þó hefði verið eðlileg málsmeðferð. Samþykktar byggingarnefndarteikningar og lóðaruppdrættir kveða jafnan á um endanlega staðsetningu og gerð sorpgerða og sorpgeymsla í samræmi við byggingarreglugerð og/eða deiliskipulag enda getur staðsetning sorpíláta verið ákveðin í deiliskipulagi. Þar sem Reykjavíkurborg hefur með áðurnefndu bréfi opnað á flutning og nýja staðsetningu sorpgerða/-geymsla án fyrirvara eða frekari leiðbeininga er óskað eftir minnisblaði skipulagsstjóra og byggingarfulltrúa um þann feril sem slíkar aðgerðir geta kallað á með tilliti til gildandi deiliskipulagsáætlana og samþykktra byggingarnefndarteikninga."
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira