Lak bankaupplýsingum á netið - Persónuvernd úrskurðar í Hraðpeningamáli SB skrifar 1. febrúar 2011 15:58 Upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga lak á netið.
Persónuvernd hefur úrskurðað að verktaki sem birti upplýsingar um lánastöðu viðskiptavina Hraðpeninga ehf. hafi brotið gegn lögum um Persónuvernd. Á vefsíðu mannsins var hægt að hlaða niður skjali með nöfnum viðskiptavina Hraðpeninga, kennitölu þeirra og bankanúmer og upplýsingar um útistandandi lán. Málið barst til Persónuverndar fyrir tilstuðlan Hraðpeninga en Pressan hafði í október birt fréttir af því að skjal með upplýsingum um viðskiptamenn fyrirtækisins væri aðgengilegt á netinu. Á fundi Persónuverndar með framkvæmdastjóra Hraðpeninga kom fram að lekann mætti reka til verktaka sem vann fyrir fyrirtækið. „Fyrirtækið hafði gert verksamning og trúnaðarsamning við umræddan kerfisfræðing og lagt fyrir hann að eyða umræddum upplýsingum þegar hann hefði lokið vinnu sinni. Í stað þess að eyða listanum setti kerfisfræðingurinn listann á læst heimasvæði á internetinu." Heimasvæði kerfisfræðingsins hét www.leppaludar.com en sú síða er nú lokuð. Í útskýringum kerfisfræðingsins kemur fram að eina helgi hafi hann fyrir mistök opnað svæðið og skjalið því orðið aðgengilegt öllum. „Gleymdi ég hins vegar að eyða listunum og vegna óheppilegra mistaka af minni hálfu lentu þau á leppaludar.com léninu mínu sem var opið út á netið. Fjarðlægði ég þau og eyddi um leið og þetta komst upp. Hræðileg mistök af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð á því að þetta hafi gerst. Tek fram að ekki var um viljaverk að ræða." Ljóst er að upplýsingarnar sem láku á netið voru afar viðkvæmar. Auk kennitölu og bankanúmers viðskiptavina Hraðpeninga mátti finna símanúmer, tölvupóstföng, tékkaábyrgðarnúmer, upplýsingar um hvenær lán var tekið, hverjir væru með útistandandi lán og ip-tala viðkomandi einstaklinga. Persónuvernd úrskurðar í málinu að kerfisfræðingurinn hafi viðurkennt mistök og gáleysi. Hann hafi gengið gegn fyrirmælum Hraðpeninga. Vinnsla hans með upplýsingarnar sé ólögmæt.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fleiri fréttir Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Sjá meira