Innlent

Varað við grýlukertum í miðbænum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svona var umlits á Laugaveginum í dag.
Svona var umlits á Laugaveginum í dag. mynd/ jmg.
Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks á höfuðborgarsvæðinu að huga að grýlukertum og snjóhengjum sem lafa fram af húsþökum því af þeim getur stafað töluverð hætta. Tilmælunum er ekki síst beint til verslunar- og/eða húseigenda á stöðum þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Þetta á meðal annars. við um Laugaveg og nærliggjandi götur í miðborginni. Mælst er til þess að fólk kanni með hús sín og grípi til viðeigandi ráðstafana áður en slys hlýst af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×