Vill ekki horfa á eftir báðum úr ríkisstjórn Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. desember 2011 15:43 Katrín Júlíusdóttir og Árni Páll eru bæði Kópavogsbúar. Óvíst er með stöðu þeirra beggja í ríkisstjórninni. mynd/ anton. „
Mér finnst það vissulega ótrúlega mikið á okkur skorið hér í kjördæminu ef báðir ráðherrarnir og báðir Kópavogsbúarnir fara út úr ríkisstjórn," segir Ýr Gunnlaugsdóttir, formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi. Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að Árni Páll Árnason sé á leið út úr ríkisstjórn á morgun. Staða Katrínar Júlíusdóttur er óljósari miðað við ráðherrakapalinn sem sagt var frá á Vísi og í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag, en öruggt er að hún mun ekki gegna ráðherraembætti til langs tíma á næsta ári því hún gengur með tvíbura og mun senn fara í barneignaleyfi. Ekki er fulljóst hvort hún muni ganga aftur að ráðherraembætti þegar fæðingarorlofi lýkur. Bæði eiga þau það sameiginlegt að vera úr suðvesturkjördæmi og þau eru reyndar bæði Kópavogsbúar. Ýr, sem situr í flokksstjórn Samfylkingarinnar sem formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi, segist engar upplýsingar hafa um stöðu mála aðrar en þær sem hún hafi fengið úr fjölmiðlum. Setja verði þann fyrirvara við skoðanir hennar á málinu. En miðað við lýsingarnar úr fjölmiðlum hugnast henni málið ekki. „Það er auðvitað búið að kalla eftir breytingum, en að báðir ráðherrarnir fari og þau bæði búin að standa sig með svona miklum sóma," segir Ýr. Ýr segir að töluverður fjöldi fólks eigi seturétt á flokkstjórnarfundi en býst við því að mætingin verði dræm, bæði vegna illrar færðar og vegna tímasetningarinnar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira