Umdeildir skúrar aftur á lóðina 23. desember 2011 06:00 Skúr á skólalóð í fyrra Skúrarnir á lóð Vesturbæjarskóla vöktu hörð viðbrögð foreldra og var því ákveðið að fjarlægja þá.fréttablaðið/stefán
Til stendur að flytja þrjár færanlegar kennslustofur á skólalóð Vesturbæjarskóla til að þjóna sem skólastofur. Gert er ráð fyrir að skúrarnir verði færðir nú á milli jóla og nýárs. Þetta var ákveðið á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur. Í fyrra skapaðist mikil umræða meðal foreldra þegar tvær færanlegar kennslustofur voru settar á skólalóðina, beint á leiksvæði og íþróttavöll nemenda. Vegna mikilla mótmæla var ákveðið að flytja skúrana burt. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, situr í minnihluta ráðsins og mótmælir hann áformum meirihlutans. „Ég flutti tillögu um að leita annarra leiða með staðsetningu skúranna en að setja þá á þennan stað. Til dæmis er hægt að koma að minnsta kosti tveimur af þremur fyrir í götustæði Vesturvallagötu en sú tillaga var felld af meirihlutanum," segir Kjartan. Í bókun frá fundinum segir að stýrihópur skipaður á vegum skóla og frístundasviðs, foreldra og starfsfólks Vesturbæjarskóla hafi komist að þeirri niðurstöðu að besti kosturinn til að bregðast við plássleysi í skólanum sé að setja niður þrjár færanlegar kennslustofur á skólalóðina. Skipulagsyfirvöld hafi tekið neikvætt í að nýta Vesturvallagötu og ljóst sé að sá reitur rúmi ekki þær stofur sem skólinn þurfi á að halda.- sv
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira