Ákvörðun um Vaðlaheiðargöng dregst Kristján Már Unnarsson skrifar 23. desember 2011 13:56
Formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga óttast að ákvörðun um gangagerðina frestist um einn mánuð enn hið minnsta og segir vont að halda verktökum áfram í óvissu. Tilboð í verkið voru opnuð þann 11. október í haust og áttu ÍAV og Marti lægsta boð upp á 8,9 milljarða króna, sem var 95% af kostnaðaráætlun. Málið fór síðan fyrir Alþingi, sem samþykkti þann 17. nóvember að heimila fjármálaráðherra að gera samning um fjármögnun Vaðlaheiðarganga og taka lán fyrir allt að einum milljarði króna fyrir framkvæmdunum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lýsti því jafnframt yfir á Alþingi að hann hygðist láta óháðan aðila gera úttekt á sjálfbærni verkefnisins áður en framkvæmdir hæfust. Steingrímur hafði áður sagt frammi fyrir þingnefnd að hann teldi yfirgnæfandi líkur á að Vaðlaheiðargöng myndi standa undir sér, og gott betur en það, en þá lá fyrir mat MP banka, Arctic Finance og Saga capital á sjálfbærni framkvæmdarinnar. Fjármálaráðuneyti fékk síðan ráðgjafafyrirtækið IFS til að fara yfir útreikningana og forsendur þeirra og hafði verið vonast til að niðurstaða þess fengist um miðjan desember. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga, kveðst hafa fengið þær upplýsingar úr fjármálaráðuneyti að niðurstaða IFS væri ekki komin og kvaðst hún ekki búast við henni fyrr en eftir áramót úr þessu. Niðurstöðuna þyrfti síðan að kynna fjárlaganefnd en þar sem Alþingi kæmi ekki úr jólafríi fyrr en eftir miðjan janúar taldi Kristín blasa við að ákvörðun um Vaðlaheiðargöng yrði vart tekin fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn í janúar. Kristín lýsir vonbrigðum með hversu lengi ákvörðun er að dragast og segir sérstaklega vont að verktökum sé haldið svona í óvissu. Þá er einnig óvíst hvort umhverfis- og samgöngunefnd muni blandast frekar inn í málið en hún hefur farið þess á leit við forsætisnefnd Alþingis að þingið greiði fyrir úttekt, sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands yrði falið að gera á hagkvæmni Vaðlaheiðarganga.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira