Á fjórða tug vitna og sakborninga yfirheyrðir 17. janúar 2011 18:45 Halldór J. Kristjánsson kom til landsins í gær. Hér sést hann koma í húsakynni sérstaks saksóknara.
Á fjórða tug vitna og sakborninga hafa verið yfirheyrðir af embætti sérstaks saksóknara vegna meintrar markaðsmisnotkunar Landsbankans fyrir hrun. Sex teymi vinna að yfirheyrslunum en búist er við því að fjöldi sakborninga og vitna aukist. Embætti sérstaks saksóknara hefur yfirheyrt hátt í 40 manns vegna meintrar markaðsmisnotkunar stjórnenda Landsbankans um fimm ára skeið í aðdraganda hrunsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu margir bætast við þann fjölda á næstu dögum og nokkrir hafa nú þegar fengið stöðu sakbornings. Þá mun fjöldi sakborninga breytast á næstunni þar sem sérstakur saksóknari reiknar með því að einhverjir eigi eftir að bætast við en aðrir, sem nú þegar hafa stöðu sakbornings, fá réttarstöðu vitnis. Í samtali við fréttastofu vildi sérstakur saksóknari ekki tjá sig um fjölda sakborninga í málinu en segir sex teymi nú yfirheyra þá sem talið er að komi að málinu. Fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá því í gærkvöld að í gæsluvarðhaldskröfu yfir Sigurjóni Þ. Árnasyni sé hann sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun sem laut að því að halda uppi gengi hlutabréfa bankans, svo sem með lánveitingum til útvalinna viðskiptavina bankans til kaupa á hlutabréfum bankans með veði í bréfunum sjálfum. Þá var Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans úrskurðaður í farbann til 25. janúar en Halldór féllst á farbannskröfuna. Að sögn Friðjóns Arnar Friðjónssonar, lögmanns Halldórs, var vilji hans að aðstoða sérstakan saksóknara við rannsóknina og dveljast á Íslandi á meðan hún fer fram. Þess vegna hafi Halldór ekki mótmælt kröfunni um farbann fyrir rétti.
Tengdar fréttir Sigurjón og Ívar í gæsluvarðhald Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar klukkan 16. Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kvað upp úrskurðinn rétt eftir klukkan tvö í dag. Þá hefur Ívar Guðjónsson verið úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald. 14. janúar 2011 14:15 Landsbankinn veitti búlgörskum kaupsýslumanni milljarða yfirdrátt í miðju hruni Meðal þess sem Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, er gefið að sök er að hafa borið ábyrgð á 4,5 milljarða króna yfirdráttarláni til búlgarsks viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar í lok september 2008 aðeins viku fyrir hrun. Sigurjón er sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun. 16. janúar 2011 18:30 Bankastjórnendur á hrauninu - Halldór yfirheyrður á morgun Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans og Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, dveljast nú á Litla Hrauni í gæsluvarðhaldi en þeir voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald í ellefu daga annars vegar og sjö daga hins vegar. 15. janúar 2011 09:32 Halldór J. mætir í yfirheyrslu: Það sem ég gerði var í samræmi við lög „Ég er mættur til þess að gefa skýrslu. Á ég ekki að gefa þeim skýrslu sem við mig vilja tala,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, þegar hann mætti til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara rétt fyrir klukkan tvö í dag. 16. janúar 2011 14:40 Meðhöndlun aflandsfélaga sýndu ranga stöðu Landsbankans Meðhöndlun aflandsfélaga sem héldu utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og eru nú ein þungamiðjan í rannsókn sérstaks saksóknara á bankanum varð þess valdandi að eigið fé bankans varð meira en 50 milljörðum króna hærra í ársreikningi og staða hans sýndist því mun betri en hún var í raun. 15. janúar 2011 18:42 Sigurjón færður aftur til yfirheyrslu Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var færður aftur til yfirheyrslu á fjórða tímanum í dag frá Litla-Hrauni þar sem hann er í gæsluvarðhaldi. Þegar er Halldór J. Kristjánsson, sem starfaði við hlið hans sem bankastjóri Landsbankans, í yfirheyrslum en hann kom til skýrslutöku eftir hádegi í dag. Þá var hann að kom frá Kanada þar sem hann býr og starfar. 16. janúar 2011 16:23 Halldór J. settur í farbann Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið úrskurðaður í farbann til 25. janúar. Hann kom til landsins í gær frá Kanada, þar sem hann er búsettur, til að gefa skýrslu hjá sérstökum saksóknara. Málið snýst um meinta markaðsmisnotkun stjórnenda bankans um fimm ára skeið í aðdraganda hrunsins. Um tugmilljarða króna er að ræða. 17. janúar 2011 06:15 Halldór á leiðinni til landsins í skýrslutöku Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns Þ. Árnasonar, er væntanlegur til landsins í dag og hefur verið boðaður í skýrslutöku í dag, að sögn Friðjóns Arnar Friðjónssonar, verjanda hans. 16. janúar 2011 10:01 Sigurjón leiddur fyrir dómara - verjandi furðar sig á gæsluvarðhaldi Sigurjón Þ. Árnason var leiddur fyrir dómara laust fyrir klukkan tvö í dag og úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald. Ívar Guðjónsson, forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. 14. janúar 2011 19:34 Fyrrverandi bankastjóri yfirheyrður í 7 klukkustundir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara í gær í sjö klukkustundir samfleytt. Halldór J. Kristjánsson er væntanlegur til landsins í dag. Hæstiréttur mun taka afstöðu til kæru vegna gæsluvarðhalds yfir Sigurjóni og Ívari Guðjónssyni á morgun. 16. janúar 2011 12:09 Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Lögreglan lýsir eftir Andra Snæ Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Lögreglan lýsir eftir Andra Snæ Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Sjá meira
Sigurjón og Ívar í gæsluvarðhald Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar klukkan 16. Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kvað upp úrskurðinn rétt eftir klukkan tvö í dag. Þá hefur Ívar Guðjónsson verið úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald. 14. janúar 2011 14:15
Landsbankinn veitti búlgörskum kaupsýslumanni milljarða yfirdrátt í miðju hruni Meðal þess sem Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, er gefið að sök er að hafa borið ábyrgð á 4,5 milljarða króna yfirdráttarláni til búlgarsks viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar í lok september 2008 aðeins viku fyrir hrun. Sigurjón er sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun. 16. janúar 2011 18:30
Bankastjórnendur á hrauninu - Halldór yfirheyrður á morgun Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans og Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, dveljast nú á Litla Hrauni í gæsluvarðhaldi en þeir voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald í ellefu daga annars vegar og sjö daga hins vegar. 15. janúar 2011 09:32
Halldór J. mætir í yfirheyrslu: Það sem ég gerði var í samræmi við lög „Ég er mættur til þess að gefa skýrslu. Á ég ekki að gefa þeim skýrslu sem við mig vilja tala,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, þegar hann mætti til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara rétt fyrir klukkan tvö í dag. 16. janúar 2011 14:40
Meðhöndlun aflandsfélaga sýndu ranga stöðu Landsbankans Meðhöndlun aflandsfélaga sem héldu utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og eru nú ein þungamiðjan í rannsókn sérstaks saksóknara á bankanum varð þess valdandi að eigið fé bankans varð meira en 50 milljörðum króna hærra í ársreikningi og staða hans sýndist því mun betri en hún var í raun. 15. janúar 2011 18:42
Sigurjón færður aftur til yfirheyrslu Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var færður aftur til yfirheyrslu á fjórða tímanum í dag frá Litla-Hrauni þar sem hann er í gæsluvarðhaldi. Þegar er Halldór J. Kristjánsson, sem starfaði við hlið hans sem bankastjóri Landsbankans, í yfirheyrslum en hann kom til skýrslutöku eftir hádegi í dag. Þá var hann að kom frá Kanada þar sem hann býr og starfar. 16. janúar 2011 16:23
Halldór J. settur í farbann Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið úrskurðaður í farbann til 25. janúar. Hann kom til landsins í gær frá Kanada, þar sem hann er búsettur, til að gefa skýrslu hjá sérstökum saksóknara. Málið snýst um meinta markaðsmisnotkun stjórnenda bankans um fimm ára skeið í aðdraganda hrunsins. Um tugmilljarða króna er að ræða. 17. janúar 2011 06:15
Halldór á leiðinni til landsins í skýrslutöku Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns Þ. Árnasonar, er væntanlegur til landsins í dag og hefur verið boðaður í skýrslutöku í dag, að sögn Friðjóns Arnar Friðjónssonar, verjanda hans. 16. janúar 2011 10:01
Sigurjón leiddur fyrir dómara - verjandi furðar sig á gæsluvarðhaldi Sigurjón Þ. Árnason var leiddur fyrir dómara laust fyrir klukkan tvö í dag og úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald. Ívar Guðjónsson, forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. 14. janúar 2011 19:34
Fyrrverandi bankastjóri yfirheyrður í 7 klukkustundir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara í gær í sjö klukkustundir samfleytt. Halldór J. Kristjánsson er væntanlegur til landsins í dag. Hæstiréttur mun taka afstöðu til kæru vegna gæsluvarðhalds yfir Sigurjóni og Ívari Guðjónssyni á morgun. 16. janúar 2011 12:09