„Gaman að heyra að Elvis sé orðinn íslenskur“ Boði Logason skrifar 8. febrúar 2011 21:00 „
Hvað ertu að segja, ég verð að skoða þetta eitthvað betur," segir Jósef Ólason, stofnandi aðdáendaklúbbs Elvis Presley á Íslandi. Mannanafnanefnd hefur nú samþykkt nafnið Elvis, en úrskurður þess efnis var birtur á vef réttarheimildar 21. janúar síðastliðinn. Á Facebook síðu Jósefs segir að hann sé besta Elvis eftirherma landsins og hafi „söngrödd engils og hreyfingar meistarans." Aðspurður segist hann ætla að ræða við eiginkonu sína um að fá að breyta nafninu sínu í Jósef Elvis Aron Ólason, úr því að mannanafnanefnd hefur samþykkt nafnið sem íslenskt. „Að sjálfsögðu, það eru margir sem hafa tekið þetta nafn úti í útlöndum en það er gaman að heyra að Elvis sé orðinn íslenskur. Ég ætla að hugsa þetta betur og ræða við konuna mína um þetta," segir Jósef. Hann hefur notað Elvis nafnið þegar hann auglýsir sig á Facebook og þegar hann kemur fram. „En ég hef ekki notað það þegar ég er ekki að skemmta. Nú verðum við að skoða það betur." Hann segist hafa fylgst með Elvis frá átta ára aldri en þá sá hann rokkgoðsögnina fyrst í kanasjónvarpinu. „Ég gerði bara nákvæmlega eins og hann og er búinn að halda upp á hann síðan. Ég stofnaði svo klúbbinn árið 2000." Hann segist ekki vera einn á bakvið klúbbinn. „Konan mín og tengdamamma eru allt í öllu í þessu og hafa styrkt mig mikið," segir hann. Jósef skírði dóttur sína Lísu Maríu, en dóttir Elvisar heitir Lisa Marie. „Og dóttir mín fæddist 5. febrúar og dóttir hans 1. febrúar, það eru bara fjórir dagar á milli," segir hann að lokum.Í meðfylgjandi myndskeiði sést Jósef „Elvis Aron" Ólason syngja lag eftir kónginn.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fleiri fréttir Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Sjá meira