Aldrei fór ég suður verður haldin - stuð mælt í travoltum 8. febrúar 2011 13:22 Stuðið verður mælt í travoltum.
Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og velunnarar hátíðarinnar blása til opins borgarafundar í sal Edinborgarhússins á Ísafirði á fimmtudagskvöld samkvæmt fréttavef Bæjarins bestu, bb.is. Aðal umræðuefni fundarins verður Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, framtíð hennar og framþróun. Farið verður yfir síðustu hátíðir, hvað hefur verið gert rétt og hvað ekki og viðraðar verða hugmyndir um hvert hátíðin getur þróast. „Af forsvarsmönnum hátíðarinnar hafa heyrst fregnir af hugsanlegri þreytu en þær fregnir eru stórlega ýktar og ljóst að menn hafa fengið einhvers konar endurnýjun lífdaga í kjölfar stuðsamkomulags bæjaryfirvalda og Vestfirðinga allra. Í ár hafa íbúar Ísafjarðarbæjar og nágrannabyggðarlaga nefnilega lýst yfir vilja til að bretta upp ermar og aðstoða við hátíðina og er því markmiðið að safna saman í góðan og öflugan hóp vaskra meyja og sveina til að stuðla að öflugri hátið í ár," segir í tilkynningu stjórnar hátíðarinnar sem birtist á vef bb.is. Takmark hátíðarhaldara er að ná samhug í verki og fá alla með í stuð. „Stuð er mikilvægt. Þess vegna verður fundurinn stuðmældur með nýjustu tækni, stuðmæli sem hannaður var sérstaklega fyrir þetta tilefni en eins og flestir vita er stuð mælt í travoltum (tV). Með stuð að vopni er okkur allt mögulegt, þegar stuð heimamanna er tryggt mun það smitast til gesta okkar og ekki síst til allra þeirra sem koma munu fram á hátíðinni. Það eru fyrst og fremst tónlistarmennirnir sem gera þessa hátíð að því sem hún er og það er einbeittur vilji okkar að þeir fái greitt í gleði, kærleika, ánægju og stuði allra á svæðinu," segir stjórnin. Aldrei fór ég suður verður nú haldin í áttunda sinn en ævintýrið hófst árið 2004. Hún mun fara fram um páskana, dagana 20. - 24. apríl, en hátíðin hefur náð að teygja vel úr sér yfir helgina með metnaðarfulla dagskrá af ýmsum toga. Nefna má að síðustu tvö ár hefur verið haldið málþing samhliða hátíðinni um margt sem viðkemur tónlistariðnaðinum, myndlistarsýningar, uppistand og svokölluð „off venue" dagskrá. Tilkynnt verður um þau dagskráratriði sem eru klár, hverjir munu standa á baki hátíðinni á ár og hverjir munu hýsa hátíðina.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Sjá meira