Innlent

Kvikmyndahús slást um klassíska tónlist

Úr uppsetningu Royal Opera House á Faust. Hægt verður að horfa á sýninguna í Háskólabíói. Kvikmyndahús úti um allan heim eru nú með beinar útsendingar frá menningarviðburðum; óperum og leik- og ballettsýningum. Bæði Sena og Sambíóin ætla að bjóða upp á hámenningu í vetur.
Úr uppsetningu Royal Opera House á Faust. Hægt verður að horfa á sýninguna í Háskólabíói. Kvikmyndahús úti um allan heim eru nú með beinar útsendingar frá menningarviðburðum; óperum og leik- og ballettsýningum. Bæði Sena og Sambíóin ætla að bjóða upp á hámenningu í vetur.
„Þetta er enginn risamarkaður heldur mjög tryggur hópur og við sjáum oft sömu andlitin," segir Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna. Kvikmyndafélagið Sena tilkynnti í gær að það hygðist hefja beinar útsendingar frá óperum og ballettsýningum Royal Opera House í Háskólabíói. Fyrsta sýningin verður Faust miðvikudaginn 28. september.

Og það er kannski ekkert skrýtið að Sena skuli hefja innreið sína inn á þennan markað því þetta hefur mælst ákaflega vel fyrir hjá Sambíóunum. Þrjátíu þúsund gestir hafa séð sýningar Sambíóanna síðastliðin þrjú ár. „Það er mjög stór og tryggur hópur sem kaupir sér miða á allt tímabilið og þeir hafa allir verið mjög ánægðir. Það er yfirleitt uppselt á frumsýningarnar og svo er bætt við aukasýningum ef áhuginn er fyrir hendi," segir Alfreð.

„Okkur bauðst samstarf við Royal Opera House og þær sýningar voru einfaldlega of góðar til að sleppa þeim. Og þetta er jafnframt hluti af því sem kvikmyndahús úti í heimi eru í sífellt meiri mæli að skoða," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá Senu. Hann segir að Sena hafi viljað nýta Háskólabíó fyrir beinar útsendingar frá menningarviðburðum eftir að Sinfóníuhljómsveitin flutti yfir í Hörpu.

„Við ætlum að vera með sýningarskrá og láta fólki líða eins og það sé að mæta á tónleika með sinfóníunni." Steinþór telur greinilegt að það sé markaður fyrir svona viðburði, hann finni í það minnsta strax fyrir mikilli eftirspurn.- fgg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×