1400 blaðsíður um íslenska listasögu 22. september 2011 13:45 Frá fundinum í dag mynd/villi
Á blaðamannafundi í morgun var kynnt útgáfa yfirlitsverks um íslenska myndlist. Verkið ber nafnið Íslensk listasaga og er fimm binda verk sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Bindin eru gefin út í vandaðri öskju og er samtals um 1400 blaðsíður. Það er Forlagið sem gefur út verkið í samvinnu við Listasafn Íslands og segir í tilkynningu að markmiðið sé ekki aðeins að gera grein fyrir sögu íslenskrar myndlistar heldur einnig að styrkja og móta hugmyndir okkar um myndlist þjóðarinnar, sameiginlega arfleifð hennar og sjálfsmynd. Í tilefni útgáfunnar opnaði í dag yfirlitssýningin ÞÁ OG NÚ í Listasafni Íslands. „Verkefnið hefur átt sér langan aðdraganda en í ársbyrjun 2007 var Ólafur Kvaran ráðinn ritstjóri þess, ritstjórn skipuð og samningar gerðir við fjórtán höfunda. Við ritun verksins er lögð sérstök áhersla á einkenni íslenskrar myndlistar á hverju tímaskeiði, sögulegt samhengi hennar og samband við alþjóðlega listasögu. Í umfjöllun og túlkun höfundanna er þannig leitað svara við ýmsum sameiginlegum spurningum en jafnframt eru áherslur þeirrar ólíkar því viðfangsefnin eru um margt ólík. Í verkinu eru litljósmyndir af á annað þúsund listaverkum, sem varðveitt eru á söfnum hérlendis sem erlendis eða eru í einkaeigu, og yfirgripsmikill fróðleikur sem nú verður aðgengilegur almenningi á einum stað. Útgáfa Íslenskrar listasögu er því mikið menningarlegt framlag sem vert er að gefa gaum á erfiðum tímum í íslensku þjóðlífi,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira