Strætóferðir til Hafnar hafnar Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. desember 2011 11:00 Í Landeyjahöfn Eftir áramótin verður hægt að ferðast með strætó til Landeyjahafnar og austur á Höfn í Hornafirði. Fréttablaðið/Stefán
Samgöngur Frá og með 2. janúar verður hægt að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði. Fjölgun leiða er sögð liður í stórfelldri stækkun þjónustusvæðis Strætó bs. í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). „Eitt samtengt leiðakerfi verður allt frá Höfn í Hornafirði og til Reykjavíkur, um uppsveitir Árnessýslu, niður í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn. Þessi breyting felur m.a. í sér að fleiri Sunnlendingar eiga möguleika á að sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins og gagnkvæmt,“ segir í tilkynningu Strætó. Fargjöld verða lægri og tímaáætlanir leiðanna verða samræmdar, svo farþegar komist hraðar á milli staða. Suðurlandi er skipt í mismunandi gjaldsvæði og fargjöld miðast við fjölda gjaldsvæða sem farið er um. Akstur hefst á fimm nýjum leiðum í ársbyrjun, en á tveimur þeirra, leið 72 frá Selfossi upp á Laugarvatn og leið 73 frá Selfoss að Flúðum, þarf að bóka ferð með minnst tveggja tíma fyrirvara. „Og á leið 51 þarf að panta far milli Víkur og Hafnar fyrir klukkan 18 daginn áður.“ Haft er eftir Þorvarði Hjaltasyni, framkvæmdastjóra SASS, að þar á bæ séu bundnar miklar vonir við nýtt samræmt almenningssamgöngukerfi á Suðurlandi. „Ég skora á Sunnlendinga að nýta sér þá auknu þjónustu sem býðst með því. Enginn vafi er á því að um verulegan sparnað getur verið að ræða fyrir almenning, auk þjóðhagslegs og umhverfislegs ávinnings,“ segir hann. Upplýsingar um strætósamgöngur á Suðurlandi er að finna á www.straeto.is.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira