Ekki mælt með upphafskvóta 23. desember 2011 07:00 Skipin fóru síðar til mælinga vegna verkfalls skipsverja.fréttablaðið/pjetur
Lítið mældist af loðnu í leiðangri Hafrannsóknastofnunar sem lauk 10. desember. Var fjöldi ungloðnu svipaður og í lélegu árunum frá 2004 til 2009 og aðeins tíu prósent sem mældist haustið 2010. Ekki er unnt að mæla með upphafsaflamarki í loðnu fyrir haustið 2012 á grunni fyrirliggjandi gagna, að mati Hafró. Í fyrrahaust voru ungloðnumælingarnar gerðar tveimur mánuðum fyrr. Þá var hluti ungloðnunnar á því svæði sem unnt var að kanna nú en langmest af loðnunni, bæði ungloðnu og eldri loðnu, var á grænlenska landgrunninu og norður með Austur-Grænlandi, eða á svæði sem ekki var unnt að kanna núna vegna íss. Ekki verður fullyrt hvort dreifing loðnunnar er með sama hætti og í fyrra, að sögn Hafró, en ef það er raunin var stærstur hluti loðnustofnsins utan rannsóknasvæðisins í ár. Reiknað er með að gerð verði tilraun til frekari ungloðnumælinga á nýju ári ef aðstæður leyfa. Magn kynþroska loðnu var miklu minna en búast hefði mátt við eftir ungloðnumælingar haustið 2010. Hafró mun strax í byrjun nýs árs fara til mælinga á veiðistofni loðnu og að loknum þeim mælingum mun stofnunin leggja til aflamark fyrir yfirstandandi vertíð.- shá
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira