Engin refsing jafníþyngjandi og ágangur fjölmiðla 23. desember 2011 06:00 Verjandi telur að Baldur hafi ekki aðeins verið sakfelldur með dómi heldur einnig fyrir fram af fjölmiðlum.Fréttablaðið/gva
Fjölmiðlaumfjöllun um mál Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, hefur verið svo óvægin að engin refsing getur staðist samanburð við hana. Svo segir í greinargerð lögmanns hans, Karls Axelssonar, til Hæstaréttar. Baldur var í apríl dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik og var þeim dómi áfrýjað til Hæstaréttar. Meðal þeirra sjónarmiða sem verjandi telur að eigi að verða Baldri til refsilækkunar, verði hann á annað borð fundinn sekur, er að hann hafi „nú þegar orðið fyrir dæmalausum áföllum og ágangi á mannorð sitt og allt persónulegt starf og líf, en þar hefur fjölmiðlaumfjöllun spilað stórt hlutverk. Á ákærða hefur þannig, og frá því að málið fyrst komst í hámæli haustið 2008, verið gefið út hreint veiðileyfi af hálfu fjölmiðla, sem farið hafa hamförum í umfjöllun um hann, persónu hans og störf og ekki síst fyrirfram sakfellingu á meintu broti hans“. Þá hafi upplýsingum verið lekið um gang rannsóknarinnar. „Af þessum sökum „hraktist“ ákærði úr starfi ráðuneytisstjóra í nóvember 2009 og hefur verið án atvinnu frá þeim tíma. Er það raunar svo að sú refsing sem mögulegt er að gera honum úr þessu vegur lítið í samanburði við þá ágjöf sem hann og fjölskylda hans hefur mátt þola á fjórða ár.“ Ríkissaksóknari hafnar þessu í greinargerð sinni og segir engin fordæmi fyrir því í dómum Hæstaréttar að fjölmiðlaumfjöllun sé metin sakborningum til refsilækkunar. - sh
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira