Hótel Borg tvöfaldar herbergisfjölda sinn 23. desember 2011 09:45 Áformuð nýbyggingin aftan við Hótel Borg er afmörkuð með brotalínum á þessari teikningu sem lögð var fram í skipulagsráði Reykjavíkurborgar.Mynd/THG Arkitektar
Eigendur Hótel Borgar óska nú eftir breytingum á deiliskipulagi svo tvöfalda megi fjölda herbergja hótelsins í fimm hæða nýbyggingu austan við húsið. Með breytingunni yrðu herbergin 99. Hundrað herbergi þykir hentug rekstrareining. „Í dag eru 56 glæsileg hótelherbergi á Borginni en nauðsynlegt er talið að fjölga þeim til að bæta rekstur þessa fornfræga hótels,“ segir í erindi til skipulagsráðs Reykjavíkur þar sem óskað er eftir því að fá að reisa nýtt hús austan við hótelið og bæta við 53 herbergjum. Samkvæmt umsókninni til skipulagsyfirvalda er ætlunin að byggja fimm hæða hús bak við Hótel Borg. Nýja húsið verður 2.170 fermetrar. Í dag er hótelið 3.085 fermetrar svo það yrði 5.195 fermetrar eftir breytingu. Það er tæpum eitt þúsund fermetrum meira byggingarmagn en heimilt er í gildandi deiliskipulagi sem aðeins gerir ráð fyrir tveggja hæða nýbyggingu á baklóðinni. Því þarf deiliskipulagsbreytingu til að auka leyfilegt byggingarmagn á lóðinni sem er númer ellefu við Pósthússtræti. Eftir breytinguna yrðu 99 herbergi á Hótel Borg. Um eitt hundrað herbergi þykir hentugur fjöldi fyrir hótelrekstur. Hótel Borg er rekin af Keahótelum ehf. en sjálfar byggingarnar eru í eigu Aðalsteins Karlsson, Lárusar Blöndals og Guðmundar Birgissonar. „Það væri óskandi að við fengjum að byggja það magn herbergja sem þarf til að nýbyggingin sé raunhæf og að skotið verði traustari stoðum undir rekstur hótelsins til framtíðar,“ segir Aðalsteinn. Í umsókninni til skipulagsráðs bendir Halldór Guðmundsson, arkitekt hjá THG Arkitektum, á að að ímynd Hótels Borgar í miðborginni hafi verið sterk í áranna rás. „Núverandi eigendur hótelsins endurgerðu bygginguna fyrir nokkrum árum og ekkert var sparað til þess að endurvekja þann glæsileika sem hótelið var áður þekkt fyrir,“ segir í umsókninni. Meðal þeirra atriða sem reikna má með að eigendur húsa í nágrenni við Hótel Borg hafi áhyggjur af er skuggavarp frá nýju byggingunni. Við vinnslu teikninga sinna kveðst Halldór hafa gert breytingar til að sem minnstur skuggi falli á nágrannalóðirnar. Þess má geta að á fyrstu hæð nýja hússins er ætlunin að hafa rými fyrir smáverslanir, þjónustustarfsemi í kjallara og hótelherbergi á annarri hæð og upp úr. Ákvörðun um framhald málsins var frestað á síðasta fundi skipulagsráðs. gar@frettabladid.is
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira