Dauð síld eykur samstarf skipa 22. desember 2011 07:00 Uppi í harða landi Samstarf sjómanna á síldveiðum er útbreitt en aðstæður gera veiðarnar mjög erfiðar.fréttablaðið/vilhelm „
Útgerðirnar taka fréttir af dauðri síld á Breiðafirði mjög alvarlega og munu leggja sig allar fram um að áhrif veiðanna verði eins lítil og mögulegt er,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri sambandsins. Friðrik segir að útgerðir síldarskipa leggi áherslu á að umgengni um síldarmiðin verði eins góð og best verður á kosið. Í því skyni hafi verið ákveðið að samstarf útgerðanna um veiðarnar verði enn nánara á næstu vertíð en verið hefur við að miðla afla á milli skipa og til að draga úr hættunni á að óhöpp verði við veiðarnar. Undanfarna daga hafa birst fréttir af dauðri síld á Breiðafirði. Af því tilefni hafa útgerðir síldarskipa fundað og farið yfir þær upplýsingar sem fyrir liggja. Friðrik segir að fram hafi komið að á vissum stöðum séu aðstæður til veiðanna erfiðar og síld hafi sloppið út jafnvel þó að ítrustu varúðar hafi verið gætt. Á undanförnum árum hefur langstærstur hluti íslenska síldarstofnsins haft vetursetu á mjög afmörkuðum svæðum á Breiðafirði. Frá því að sýking kom upp í stofninum hafa hundruð þúsunda tonna af síld drepist, ekki síst á Breiðafirði. - shá
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira