Fjölga þarf leiguíbúðum á landinu um 16 þúsund 21. desember 2011 08:30 Í skýrslunni kemur fram að langmest þörf eftir leiguhúsnæði er í Reykjavík og að flestir væntanlegir leigjendur vilja búa miðsvæðis í höfuðborginni. fréttablaðið/GVA
Gríðarleg eftirspurn er eftir leiguhúsnæði. Um 70% fleiri Íslendingar vilja leigja íbúð en gera það í dag. Langflestir væntanlegir leigjendur vilja búa í Reykjavík. Um fimm þúsund íbúðir vantar í miðbæinn. Leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu þarf að fjölga um tæplega níu þúsund á næstu þremur árum til að mæta eftirspurn. Til lengri tíma þarf þeim að fjölga um 13 þúsund á svæðinu og 16 þúsund á landinu öllu. Um 94% fjölgunarinnar á höfuðborgarsvæðinu þurfa að vera í Reykjavík þar sem langflestir framtíðarleigjendur vilja búa. Um 70% fleiri Íslendingar vilja leigja sér íbúð en gera það í dag. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Capacent vann fyrir Reykjavíkurborg og ber nafnið „Staða, horfur og möguleikar á húsnæðisleigumarkaði árið 2011“. Skýrslan var kynnt í borgarráði í síðustu viku. Capacent gerði könnun á ýmsum þáttum sem tengjast þörf fyrir íbúðarhúsnæði. Úrtakið í henni var 1.396, fjöldi svarenda 811 og svarhlutfall því 58,1%. Úrtakið var vegið til að endurspegla betur þýðið, sem eru Íslendingar 18 ára og eldri. Í skýrslu Capacent kemur fram að 18,7% Íslendinga hafi leigt húsnæði um síðustu áramót. Það er mun minna hlutfall en í Danmörku (33,7%), Svíþjóð (30,3%) og 15 stofnríkjum Evrópusambandsins (29,1%). Eina landið í samanburðinum sem er með sambærilegt hlutfall á leigumarkaði og Ísland er Noregur (14,6%). Samkvæmt könnun Capacent vilja 70% fleiri Íslendingar leigja sér íbúð en gera það í dag. Þar af er aukningin langmest á höfuðborgarsvæðinu, og þá sérstaklega í Reykjavík, en um 38% þeirra sem vilja búa í Reykjavík telja líklegt eða öruggt að þeir muni leigja sér húsnæði í framtíðinni. Í skýrslunni segir að „slíkt myndi jafngilda meira en tvöföldun leigjenda í Reykjavík því einungis um 19% þeirra sem búa í Reykjavík segjast búa í leiguhúsnæði,“ en alls er 9.841 leiguhúsnæði í höfuðborginni í dag. Eftirspurn þeirra er því 12.091 umfram þær leiguíbúðir sem til eru. Í greiningunni kemur fram að um fimm þúsund leiguíbúðir þurfi að rísa til að anna eftirspurn í póstnúmeri 101. Næstvinsælustu hverfin eru Hlíðarnar og Vesturbærinn, póstnúmer 105 og 107. Í skýrslu Capacent segir að það blasi því við að þeir sem hafa hug á að leigja „vilji flestir vera miðsvæðis. Ekki einungis í höfuðborginni heldur í miðbæ höfuðborgarinnar“. Skýrsluhöfundar segja að leiguhúsnæði á landinu sé fjarri því að anna eftirspurn á næstu þremur árum. Alls þyrfti að fjölga leiguíbúðum um 7.852 á tímabilinu til að mæta henni. Til lengri tíma þyrfti þeim að fjölga um 15.968. Skammtímaþörfin á höfuðborgarsvæðinu er meiri en á landinu öllu, sem gefur til kynna að offramboð á leiguhúsnæði sé utan þess. Alls þarf 8.801 leiguíbúð til að mæta eftirspurn á næstu þremur árum. Til lengri tíma þarf leiguúrræðum á höfuðborgarsvæðinu að fjölga um 12.904. Í skýrslu Capacent kemur fram að 12.091 af þeim íbúðum þurfi að rísa í Reykjavík, eða 94%.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira