Þyrlum sagt ofaukið á kæjanum í Sundahöfn 21. desember 2011 06:00 Gegnt kajanum á Skarfabakka, handa við aðstöðu Viðeyjarferjunnar, vill Vesturflug fá lóð undir þyrlupall.Fréttablaðið/GVa
Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Atlantik segir marga vilja lóð eins og þá sem sóst er eftir undir þyrlupall við lægi skemmtiferðaskipa í Sundahöfn. Hann tekur undir með hafnarstjórnnni. Engin eftirspurn sé eftir þyrluþjónustu þar. „Ég fagna meiri fjölbreytni fyrir þessa ferðamenn en sé ekki að það sé nauðsynlegt að hafa þyrlupall við höfnina til þess að þjóna þeim,“ segir Gunnar Rafn Birgisson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Atlantik. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í síðustu viku synjaði stjórn Faxaflóahafna ósk Vesturflugs ehf. um að fá lóð undir þyrlupall við Skarfabakka. Fyrirtækið vill meðal annars þjóna farþegum skemmtiferðaskipa í Sundahöfn. Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Faxaflóahafna, skýrði synjunina með því að skipafélögin hafi ekki sóst eftir slíkri þjónustu og að mikið umstang fylgi því að uppfylla öryggiskröfur vegna þyrluflugs til og frá staðnum. Atlantik er umsvifamest eru í ferðaþjónustu við skemmtiferðaskipin sem koma til Reykjavíkur. Gunnar Rafn tekur undir með Hjálmari. „Það hefur komið fyrir að við höfum sent fólk í þyrluflug en það er mjög sjaldgæft að beðið sé um slíka þjónustu. Hún er mjög dýr og þessir farþegar eru ekki allir milljónamæringar heldur flest allir venjulegt fólk,“ segir hann. Á hinn bóginn kveðst Gunnar Rafn vel skilja að Vesturflug hafi augastað á lóð nálægt skemmtiferðaskipunum og farþegum þeirra. Eflaust myndu þá fleiri nýta sé þyrluþjónustuna heldur en þegar hún sé í boði frá Reykjavíkurflugvelli. „Ég hugsa að það séu margir sem vildu gjarnan ná til þessa fólks. Sjálfur hefði ég til dæmis ekkert á móti því að fá úthlutað lóð þarna og geta verið með sölu á ferðum,“ segir hann. Hluti vandans að sögn Gunnars er sem sagt takmarkað rými í Sundahöfn. Þyrluþjónusta þar gæti haft truflandi áhrif þegar tvö þúsund farþega skip leggi að bryggju. „Þegar stór skip eru í höfninni er planið yfirfullt af stórum rútum og bílum. Þannig að ég held að það væri ekki til bóta að setja þyrlupall niður nákvæmlega þar. Plássið er takmarkað og það er kannski það sem höfnin er að horfa á í sambandi við þyrlupallinn; að það er ekki hægt að koma öllum þeim fyrir sem sína áhuga,“ segir Gunnar Rafn. Vesturflug vonast enn til að fá lóðina í Sundahöfn, Talsmaður félagsins segiast ekki vilja tjá sig frekar um málið fyrr en að loknum fundi með fulltrúum Faxaflóahafnar í þessari viku. gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira