Búið að kyrrsetja jarðir æðstu toppanna 21. desember 2011 09:00 Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþing afkomukynning 2Q08 höfuðstöðvar Kaupþing Borgartún
Dómurinn frá því í gær staðfestir einnig kyrrsetningu sýslumannsins í Reykjavík á fimmtungseignarhlut Magnúsar í félaginu Hvítsstöðum. Það var slitastjórn Kaupþings sem fór fram á kyrrsetninguna svo að eitthvað fengist upp í 717 milljóna króna skuldina sem hann hefur nú verið dæmdur til að greiða. Félagið Hvítsstaðir er í eigu allra helstu æðstráðenda úr gamla Kaupþingi. Hinir eigendurnir eru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri samstæðunnar, Sigurður Einarsson, sem var stjórnarformaður, Ingólfur Helgason, sem var forstjóri á Íslandi, og Steingrímur P. Kárason, sem var yfir áhættustýringu bankans. Allir eiga þeir fimmtungshlut. Einn upprunalegra eigenda, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem var yfir eigin viðskiptum bankans, er ekki lengur í eigendahópnum. Hvítsstaðir ehf. voru stofnaðir árið 2002 til að kaupa fjórar jarðir á Mýrum af Sparisjóði Mýrarsýslu. Samkvæmt ársreikningi eru eignir félagsins metnar á rúmar 400 milljónir en skuldirnar rúmar 1.100 milljónir. Verðmætasta eign félagsins er Langárfoss ehf., sem metinn er á 300 milljónir. Fram kemur í ársreikningi þess félags að það hafi hagnast um rúmar fimm milljónir í fyrra og er þar lagt til að arður verði greiddur úr félaginu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru eignarhlutir allra mannanna fimm í Hvítsstöðum kyrrsettir í júní. Eignin var sú eina sem fannst á nafni Magnúsar á Íslandi, en hann er búsettur í Lúxemborg. Aðrar eignir hinna fjórmenninganna voru einnig kyrrsettar, og það sama er að segja um eignir fleiri Kaupþingsmanna sem standa í málaferlum við slitastjórnina.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira