Dómstólar herða refsingar 19. desember 2011 09:00 Páll Winkel.
Ákæruvaldið í landinu er farið að krefjast harðari refsinga yfir kynferðisbrotamönnum og dómstólar farnir að herða þær. Umræðan í samfélaginu frá almenningi, stjórnmálamönnum, grasrótarsamtökum og þolendum kynferðisbrota er farin að skila árangri í þyngri dómum. Þetta er mat Helga Gunnlaugssonar, afbrotafræðings við Háskóla Íslands. Mikil aukning hefur orðið í óskilorðsbundnum dómum yfir brotamönnum sem hafa níðst kynferðislega á börnum, en 21 einstaklingur sat í fangelsi í fyrra fyrir barnaníð. Árið 2001 sat einn inni og það sem af er ári hafa fjórtán setið í fangelsi fyrir slík brot. Hafa ber í huga að fjöldi barnaníðinga sem sitja inni safnast upp og því var talan svo há í fyrra. Að mati Helga hefur aukin umræða gert það að verkum að fólk er óhræddara við að kæra kynferðisbrot og því fái lögreglan fleiri kærur inn á borð til sín. Umburðarlyndið fyrir brotunum minnkar með hverju árinu og því má segja að þau séu meira uppi á yfirborðinu og rannsóknaraðilar taki þeim alvarlegar en áður. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir marga samverkandi þætti ástæður fjölgunarinnar. Hann nefnir þar að rannsóknaraðferðir lögreglunnar hafi batnað, Barnahús var stofnað, samvinna Barnaverndarstofu og lögreglu jókst sem og aukin menntun í geiranum almennt. „Þá kannski síðast en ekki síst stofnun kynferðisbrotadeildar lögreglunnar sem var sett á laggirnar árið 2007,“ segir Björgvin og bætir við að ákæruvaldið hafi einnig stigið ákveðið skref í sömu átt og fyrrgreindar stofnanir. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir brýnt að bregðast við þessari fjölgun því þeir fangar sem brjóta gegn börnum kynferðislega eru „lægst settir“ innan fangasamfélagsins. „Það er skylda okkar að bjóða þeim sem bestar aðstæður, líkt og öðrum,“ segir Páll. Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun hafa þó ekki orðið miklar sveiflur síðan árið 2001, að undanskildum árunum 2009 og 2010, í fjölda dóma innan hvers árs þar sem dómþoli hefur verið dæmdur annars vegar í óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum og hins vegar í skilorðsbundna refsingu. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira