Flokkar málma sjálfkrafa frá 19. desember 2011 04:00 Ásmundur Jónsson, verkstjóri í móttökustöð Sorpu, sést hér með hluti sem nýi búnaðurinn flokkaði frá almenna sorpinu. Mynd/Sorpa
Flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi hefur tekið í notkun búnað sem flokkar málmhluti sjálfvirkt, með segulafli, frá öðru sorpi. Því þurfa heimili á höfuðborgarsvæðinu og önnur svæði sem Sorpa þjónar í sorphirðu, ekki lengur að vera með sérstaka flokkunartunnu undir smáa málmhluti. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er þeim tilmælum þó beint til almennings að héðan í frá verði málmhlutir, líkt og niðursuðudósir, álpappír, skrúfur, naglar og þess háttar, settir beint ofan í sorptunnuna en ekki í poka með öðru sorpi. Málmar eru um þrjú prósent af heimilissorpi, að því er fram kemur í tilkynningunni, og alls nást um 60 prósent af öllum málmi úr sorpinu með þessari nýju aðferð. Um átta til tíu tonn af járni og um eitt tonn af öðrum málmi er flokkað frá með þessum hætti á viku. Afraksturinn er svo sendur úr landi, aðallega til Bretlands og Spánar, til endurvinnslu. Úr málminum er svo framleidd ýmis vara, svo sem grill og garðhúsgögn og þar fram eftir götunum. - þj
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira