Enn fleiri gætu fengið ákæru í málinu 19. desember 2011 09:30 Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur verið ákærður fyrir umboðssvik í störfum sínum fyrir bankann.
Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur tveimur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis fyrir stórfelld umboðssvik. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er um að ræða þá Lárus Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og Guðmund Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis. Ekki er útilokað að fleiri verði ákærðir fyrir aðkomu sína að sama máli. Þeir eru ákærðir fyrir að misfara með fé bankans í lánveitingum tengdum félaginu Svartháfi. Bankinn lánaði 10 milljarða króna til félagsins snemma á árinu 2008, en daginn áður en lánin voru veitt, varð breyting á eignarhaldi Svartháfs þannig að Werner Ívar Rasmusson, faðir Karls og Steingríms hjá Milestone, varð eini eigandi félagsins. Í Rannsóknarskýrslu Alþingis segir að þessi lánveiting virðist hafa verið til þess fallin að hún komi ekki fram hjá raunverulegum lántakanda, Milestone, sem var með mjög háa skuldastöðu við bankann. Þannig kæmi það ekki fram undir Milestone í uppgjörum á útreikningi á áhættugrunni útlána gagnvart eigin fé bankans. Eftir því sem heimildir Fréttablaðsins herma gætu fleiri verið ákærðir í framhaldinu en enn þá hefur ekki verið tekin afstaða til þess. Lárus var á dögunum úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna annarra mála sem tengjast störfum hans hjá Glitni. Guðmundur Hjaltason lét af störfum hjá Glitni rúmum tveimur mánuðum eftir að lánið til Svartháfs var afgreitt og hóf störf hjá Milestone. Hann stofnaði svo ráðgjafafyrirtæki sem vann meðal annars fyrir fjármálaráðuneytið að endurskipulagningu sparisjóðanna. Það gekk svo inn í Sögu fjárfestingabanka og þaðan inn í MP banka þar sem Guðmundur er starfsmaður í dag.- þj, sh, þsj
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira