Hraðsendingin á Ipad jafndýr tækinu sjálfu 17. desember 2011 07:00 Páll Árnason heima í Keflavík með spjaldtölvuna sem kostað hefur hann tvöfalt það verð sem hann greiddi fyrir tækið í Bandaríkjunum í fyrra. „
Hvaða líkur eru á að flutningskostnaður hlutar sé upp á sent það sama og andvirði hlutarins út úr búð?“ spyr Páll Árnason sem er afar ósáttur við að hafa verið rukkaður um jafnvirði 500 bandaríkjadollara fyrir sendingu á Ipad spjaldtölvu frá New York til Íslands. Páll gleymdi spjaldtölvunni um borð í flugvél í New York þar sem hann millilenti á heimleið frá Flórída um miðjan október. „Tapað-fundið á JFK-flugvelli ákvað að senda mér tækið til Íslands með Fedex ef ég gæfi þeim upp kreditkortanúmer. Í sakleysi mínu gerði ég það og átti von á að kostnaðurinn yrði kannski nálægt tíu þúsund krónum,“ segir Páll. Annað kom á daginn. „Viti menn, það voru dregnir 500 dollarar af kortinu mínu, það kom út á 57.655 krónur. Sú upphæð er fjórfalt það sem Fedex á Íslandi gefur upp fyrir slíkan flutning,“ lýsir Páll sem segir að á fylgiskjölum hafi andvirði spjaldtölvunnar verið sagt 500 dollarar. Sjálfur hafi hann eimitt greitt 499 dollara og 99 sent ytra fyrir tækið réttu ári fyrr. Honum þyki einkennilegt að flutningskostnaðurinn sé nákvæmlega sá sami og uppgefið andvirði tækisins. Páll kveðst hafa sent margar fyrirspurnir á aðalstöðvar Fedex í Bandaríkjunum. „Þeir benda mér alltaf á að hafa samband við Icetransport í Hafnarfirði sem þeirra fulltrúa á Íslandi. En bæði fulltrúi og framkvæmdastjóri Fedex á Íslandi senda mér bara puttann og segja að þeim komi þetta mál bara ekkert við,“ segir Páll óánægður. „Ég varð við þetta mjög reiður, enda atvinnulaus og munar mikið um þennan aur og vandaði Fedex ekki kveðjurnar á Facebook. Eiginkona mín, sem misbauð þetta líka, ákvað að deila þessum ummælum frá mér og fékk skömmu síðar hótun um lögsókn frá Fedex á Íslandi fyrir skaðleg ummæli.“ Í bréfi lögmanns Icetransport til eiginkonu Páls er harðlega mótmælt ummælum hennar á Facebook um að Fedex á Íslandi „ræni fólk“ og þess krafist að hún biðjist opinberlega afsökunar og leiðrétti rangfærslur um fyrirtækið. Ella verði hún lögsótt enda valdi hún fyrirtækinu fjárhagslegum skaða. Þá segir að Icetransport taki ekki ábyrgð á á mistökum þegar verslað sé við erlenda aðila. Icetransport hafi aldrei fengið greiðslukortanúmer Páls og aldrei tekið fé út af korti hans. gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira