Ríkisendurskoðun vill selja ESÍ 23. nóvember 2011 10:00 Már Guðmundsson er stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands.Fréttablaðið/pjetur
Ríkisendurskoðun telur að rekstur Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) samrýmist illa dagbundnum og lögbundnu verkefni Seðlabankans. Stofnunin telur að endurmeta þurfi tilvist ESÍ. Þetta er ein þeirra athugasemd sem Ríkisendurskoðun setur fram í skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings ársins 2010. Þar er lagt til „að Seðlabankinn íhugi hvort það væri ekki þágu hagsmuna hans að selja eignir félagsins eða félagið í heild til aðila sem sérhæfa sig í slíkri eignaumsýslu“. ESÍ er einkahlutafélag sem er að fullu í eigu Seðlabankans. Það var stofnað í lok árs 2009 til að halda utan um og innheimta kröfur sem Seðlabankinn eignaðist eftir bankahrun. Til að forða bankanum frá tæknilegu gjaldþroti tók íslenska ríkið upphaflega við þorra umræddra krafna, alls að upphæð 270 milljörðum króna. Þær voru að mestu tilkomnar vegna hinna svokölluðu ástarbréfaviðskipta smærri fjármálafyrirtækja við Seðlabankann fyrir hrun og 500 milljóna evra láns til Kaupþings í miðju bankahruninu. Ríkið afskrifaði stóran hluta krafnanna í ríkisreikningi ársins 2008 og „seldi“ síðan aftur til ESÍ í lok árs 2009, á bókfærðu virði krafnanna. Alls minnkuðu heildareignir ESÍ um 136,4 milljarða króna á síðasta ári. Helsta ástæðan er að virði veðkrafna á fjármálafyrirtæki sem eru í slitameðferð lækkaði um 180 milljarða króna. - þsj
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Sjá meira