Mestu endurbætur í 43 ára sögu laugarinnar 23. nóvember 2011 08:30 Hálfberir gestir verða að gera sér að góðu að spígspora um á mótatimbri milli umferðarkeilna um sinn.Fréttablaðið/stefán
Bakkar Laugardalslaugar eru nú sundurgrafnir og gestir þurfa að leggja lykkju á leið sína til að komast frá einum potti til annars. Þetta tímabundna óhagræði stafar af langmestu endurbótum í 43 ára sögu laugarinnar. „Það koma yfir 700 þúsund manns í laugina á ári þannig að það er betra að hafa þetta í lagi. Þetta er einn fjölsóttasti samkomustaður landsins,“ segir Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður Laugardalslaugar. „Það er verið að brjóta upp allan bakkann og setja hitalagnir í gönguleiðir og gúmmíyfirborð á þær,“ segir Logi. „Það er bylting. Á veturna höfum við þurft að salta með grófu korni í allar gönguleiðir. Það er bæði óþægilegt og hættulegt og því hið versta mál,“ segir Logi. Jafnframt eigi að koma upp nýjum niðurgröfnum „sjópotti“, heitum potti með saltvatni, í norðurenda sundlaugarsvæðisins, og þá sé verið að ljúka viðgerð og málun stúkunnar. Næsta skref sé svo að taka búningsklefana í gegn. Framkvæmdunum á að ljúka í mars og lagfæringarnar eru gerðar í áföngum svo hægt sé að halda lauginni opinni allan tímann. Reykjavíkurborg þarf að punga út um 150 milljónum fyrir endurbæturnar. „Auðvitað kostar þetta, en þetta er löngu tímabært,“ segir forstöðumaðurinn Logi Sigurfinnsson. - sh
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Fleiri fréttir Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Nei-hreyfingin kvíslast í nokkrar áttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Sjá meira