Frásögnum þolenda kynferðisbrota fjölgar 15. nóvember 2011 05:00 Sóknarprestur á Ísafirði segir óvenjulegt að fólk leiti til starfsmanna kirkjunnar vegna kynferðisbrota.
Umræðan um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar hefur gert það að verkum að fólk sækir í auknum mæli til presta og annarra starfsmanna kirkjunnar vegna kynferðisbrota. Þetta er mat sóknarpresta í Ísafjarðarkirkju og Akureyrarkirkju. Magnús Erlingsson, sóknarprestur í Ísafjarðarkirkju, segir að frásögn Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur af ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi föður síns hafi hjálpað fólki að horfast í augu við fortíð sína og leitað sér hjálpar. Hann segir presta í sóknum í nágrenninu hafa svipaða sögu að segja. „Hingað til hefur það verið mjög óvenjulegt að fólk leiti til okkar með vandamál sem þessi,“ segir hann. „En þegar verið er að ræða um áföll í samfélaginu þá rifjast þau upp og rifnar ofan af gömlum sárum. Umræðan hefur áhrif.“ Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, tekur undir orð Magnúsar og segir að fólki sem leiti til kirkjunnar með vandamál sín eftir að Guðrún Ebba steig fram, hafi fjölgað. „Það er enginn vafi á því að það hefur verið aukning í þessu á síðustu árum. Guðrún Ebba og þær konur sem hafa komið fram eiga miklar þakkir skildar,“ segir Svavar og bætir við að hann voni að kirkjan muni bæta sitt kerfi er varðar mál sem þessi og dragi lærdóm af fortíðinni. „Við eigum von á því að það kerfi sem verður til staðar í kirkjunni, verði til fyrirmyndar,“ segir hann. „Auðvitað voru þessi mál í ólestri hjá okkur.“ - sv
Mest lesið Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Fleiri fréttir Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Sjá meira