Móðirin vöruð við níðingnum 12. nóvember 2011 09:00
Móðir drengs, sem þurfti að þola gróft kynferðisofbeldi í áraraðir, var vöruð sterklega við að láta drenginn í hendur brotamannsins fyrir níu árum. Við húsleit hjá manninum, sem var dæmdur barnaníðingur, fundust þá kynferðislegar myndir af börnum og jafnframt myndir af drengnum í fangi hans. Þetta kemur fram í dómnum yfir manninum, sem dæmdur var í sex og hálfs árs fangelsi á fimmtudag. Þar var hann fundinn sekur um að hafa misnotað drenginn gróflega frá því að hann var tíu ára til fjórtán ára aldurs. Brotin stóðu allt þar til á þessu ári. Maðurinn hefur hlotið nokkra dóma fyrir kynferðisbrot. Hann gekkst fyrst undir sektargreiðslu fyrir vörslu kynferðislegra mynda af börnum 1998, hlaut eins árs fangelsisdóm í Hæstarétti 2001 fyrir að misnota tvo drengi, tólf og þrettán ára, og hlaut á árunum 2002 og 2007 dóma fyrir að hafa kynferðislegt myndefni af börnum í sinni vörslu. Vegna málsins sem kom upp 2002 var gerð húsleit hjá manninum og fundust þá myndir af honum með drenginn í fanginu. Sá var frændi sambýlismanns hans. Þetta varð lögreglu tilefni til að vara móðurina við því „að láta hann aldrei í hendurnar á þessum mönnum eftirlitslausan“, að því er segir í dómnum. Móðirin hélt hins vegar áfram að senda drenginn reglulega á heimili mannanna og eftirfylgni af hálfu yfirvalda var engin. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglumanninn sem rannsakaði málið reki ekki minni til að málið hafi verið tilkynnt barnaverndaryfirvöldum. Líklega hafi svo ekki verið. „Í þessu tilviki var líklega látið duga að upplýsa móður drengsins um áhyggjur lögreglu, enda drengurinn ekki inni í rannsókn málsins að neinu leyti,“ segir Björgvin. Með hliðsjón af því sem síðar kom í ljós segir Björgvin þó að hugsanlega hefði mátt setja barnaverndaryfirvöld inn í málið, og það kunni að gefa tilefni til að fara yfir verklag í málum sem þessum. - sh
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent Fleiri fréttir Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Sjá meira