Neitar að hafa kyrkt nýfæddan son sinn 11. nóvember 2011 13:00 Konan á leið í dómsal ásamt verjanda sínum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er ekki sammála þessu. Ég drap ekki barnið," sagði Agné Krataviciuté, litháísk kona, við þingfestingu ákæru á hendur henni í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ríkissaksóknari hefur ákært hana fyrir manndráp, með því að hafa veitt nýfæddum syni sínum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. Þetta hörmulega atvik átti sér stað laugardaginn 2. júlí 2011, á baðherbergi í herbergi númer 319 á vinnustað konunnar, Hótel Fróni, Laugavegi 22a, Reykjavík, segir í ákæru. Þar hafi hún fætt fullburða og lifandi sveinbarn sem síðan fannst dáið í ruslageymslu í nágrenni hótelsins. Gerð er einkaréttarkrafa á hendur konunni að upphæð þrjár milljónir króna. Við þingfestingu málsins í gær aðstoðaði túlkur, sem þýddi ákæruna fyrir konuna og túlkaði það sem fram fór í dómsal. Hún viknaði þegar hún neitaði sök, en spurði fljótlega hverjir það væru sem sætu í dómsal og átti þar við blaðamenn. Arngrímur Ísberg dómari kvað hana ekkert mega skipta sér af því í opnu þinghaldi. Konan hefur verið látin sæta geðrannsókn og var metin sakhæf. Verjandi hennar lagði fram kröfu um yfirmat á sakhæfi hennar og yrði til þess dómkvaddur matsmaður. Verjandinn lagði einnig fram kröfu um að þinghaldi yrði lokað við þingfestingu. Dómari tjáði honum að meginreglan væri sú að þinghald væri opið og hefði hann ekki tekið afstöðu til þess hvað aðalmeðferð þessa máls varðaði. -jss
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent