Fótbolti

Viljum enda árið vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hólmfríður Magnúsdóttir verður á sínum stað í íslenska liðinu í Belfast í dag.fréttablaðið/vilhelm
Hólmfríður Magnúsdóttir verður á sínum stað í íslenska liðinu í Belfast í dag.fréttablaðið/vilhelm
Ísland leikur í dag sinn síðasta leik á árinu er stelpurnar okkar mæta Norður-Írlandi í Belfast í undankeppni EM 2013. Ísland er taplaust í riðlinum og segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari að stefnan sé að kóróna frábært ár með landsliðinu með sigri.

„Ef við vinnum þennan leik förum við inn í fríið með þrettán stig af fimmtán mögulegum. Það setur pressu á hin liðin,“ segir Sigurður Ragnar, en Ísland hóf landsliðsárið á því að komast alla leið í úrslitaleik Algarve-mótsins, þar sem liðið tapaði fyrir Bandaríkjunum.

„Þetta hefur verið frábært ár en það er mikilvægt að við endum það á jákvæðum nótum. Ég á þó von á mjög erfiðum leik gegn Norður-Írlandi.“

Lykilmenn að glíma við meiðsliÞó nokkrir lykilleikmenn í íslenska landsliðinu hafa verið að glíma við meiðsli auk þess sem Edda Garðarsdóttir er orðin veik. Þá hafa þær Þóra B. Helgadóttir, Katrín Jónsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir ekki getað beitt sér af fullum krafti á æfingum vegna ýmissa meiðsla.

„Það vill oft vera erfitt að spila á þessum árstíma. Okkar leikmenn eru flestir búnir með sín tímabil og mikið er um þreytu og álagsmeiðsli. Við mættum einmitt Norður-Írlandi hér úti fyrir tveimur árum á svipuðum árstíma og höfðum þá nauman 1-0 sigur í miklum baráttuleik. Ég á von á öðru eins í dag.“

Ísland er í góðri stöðu í riðlinum. Liðið vann sterkt lið Noregs á heimavelli í haust en varð reyndar að sætta sig við markalaust jafntefli við Belgíu í næsta leik á eftir. Liðið komst aftur á sigurbraut um helgina er það vann Ungverjaland ytra, 1-0, með marki Dóru Maríu Lárusdóttur í seinni hálfleik.

„Ég var ekki alveg nógu ánægður með leikskipulagið í fyrri hálfleik og setti því Dóru Maríu inn á. Leikur liðsins lagaðist heilmikið í seinni hálfleik og sem betur fer sýndum við góðan karakter og náðum að skora þetta mikilvæga mark,“ segir Sigurður Ragnar.

„Bæði í þessum leik og gegn Belgíu hefur okkur gengið vel að skapa okkur færi en höfum nýtt þau illa. Við gáfumst þó aldrei upp og það er mikilvægt.“

Norður-Írland er sýnd veiði en ekki gefin og segir Sigurður Ragnar mikilvægt að byrja vel.

„Þær eru duglegar, berjast um alla bolta og setja pressu á andstæðinginn. En það eiga að vera meiri gæði í okkar liði og það er mikilvægt í svona leikjum að skora snemma. Þá gæti eftirleikurinn orðið auðveldari.“

Leikurinn hefst klukkan 18.30 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×