Skilar ítarlegri greiningu 28. september 2011 17:30 Dr. Bertrand Lauth, barna- og unglingageðlæknir. Fréttablaðið/Anton
Efni doktorsvarnar Bertrands Lauth, sérfræðings í barna- og unglingageðlækningum, sem hann varði í vor, er aðlögun og þýðing á bandarísku greiningarviðtali (K-SADS-PL) vegna lyndisraskana og geðklofa hjá grunnskólabörnum, mat á notagildi og áhrif þess að innleiða tækið yfir legugeðdeild fyrir unglinga, og mat á réttmæti á algengustu greiningum sem komu fram í úrtakinu. Ekki hafði áður verið til slíkt greiningartæki fyrir börn og unglinga hér á landi og segir Bertrand það góða viðbót við þau greiningartæki sem hingað til hafa verið notuð. „Það skiptir miklu máli að vanda greiningu þegar kemur að ákvörðun um meðferð hjá börnum og unglingum. Þetta tæki er ekki nóg eitt og sér en það er mikil viðbót," segir Bertrand. „Það nýtist bæði til ýmissa rannsókna og til ítarlegri greiningar á ADHD og ofvirkni, þunglyndi, kvíðaröskunum, áfallastreitu og átröskun hjá börnum og unglingum svo eitthvað sé nefnt." Greiningartækið er upp á 190 síður með stöðluðum aðferðum til greiningar geðraskana. Greinandinn notar það bæði við að spyrja barnið eða unglinginn og foreldrana. Niðurstöðurnar eru teknar saman og leitast við að leysa vandamálin sem koma fram en iðulega er ósamræmi milli foreldranna og barnsins. „Eitt af markmiðum rannsóknarinnar var einmitt að skoða þetta ósamræmi og það sem við köllum samkvæmni milli barnanna og foreldranna. Þessar greiningaraðferðir eru áreiðanlegri og hafa hlotið almenna viðurkenningu í dag bæði hjá fagaðilum og hjá rannsakendum á íslandi." Greiningartækið er upphaflega bandarískt og hefur Bertrand aðlagað það að íslenskum aðstæðum. Það er nú notað af sérfræðingum hjá BUGL og af skólasálfræðingum í nokkrum skólum. Það var upphaflega innleitt árið 2002 svo komin er reynsla á notkun þess og árangur. „Hluti rannsóknarinnar var einnig að meta notagildi og áhrif þess að innleiða svona tæki. Það kom í ljós að við greindum miklu betur meðal annars þunglyndi og sjálfsvígshugsanir hjá mörgum," segir Bertrand. „Það er mikið öryggi að nota þetta greiningartæki." Bertrand hefur starfað sem sérfræðingur í barna- og unglingageðlækningum á barna- og unglingageðdeild Landspítala- háskólasjúkrahúss frá árinu 1998. Hann starfaði í París frá 1989-1998 sem sérfræðingur á Fondation Vallée háskólasjúkrahúsi. Bertrand var stundakennari við læknadeild Háskóla Íslands frá 1998 og aðjúnkt frá árinu 2001. heida@frettabladid.is
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira