Lögreglumenn afar ósáttir við kjaraúrskurð 24. september 2011 10:00 Um 200 lögreglumenn komu saman fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara í gær til að sýna samstöðu stéttarinnar. Megn óánægja er meðal lögreglumanna með niðurstöðu dómsins. Fréttablaðið/Daníel
Snorri Magnússon Megn óánægja er í stétt lögreglumanna eftir úrskurð gerðardóms í gær. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að laun lögreglumanna skyldu hækka að sama marki og samningar á almennum vinnumarkaði, auk þrettán þúsund króna hækkunar á álagsgreiðslum. Það er talsvert undir kröfum lögreglumanna. Úrskurður gerðardóms er endanleg niðurstaða í málinu og gildir ný launatafla til vors 2014. „Við erum engan veginn sátt,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í samtali við Fréttablaðið. „Við teljum okkur hafa átt meira inni. Það er meira að segja viðurkennt að hluta til í dómsorðinu að launin okkar hafa dregist aftur úr.“ Grunnlaun lögreglumanna eftir nám í Lögregluskólanum voru rúmlega 211 þúsund á mánuði, en kröfur þeirra hljóðuðu upp á 325 þúsund. „211 þúsund á mánuði, eftir skatta eru rétt yfir atvinnuleysisbótum. Þessi hækkun núna er ekki meiri en svo að nú um næstu mánaðamót sýnist mér að meginþorri stéttarinnar muni fá þessa lágmarks krónutöluhækkun upp á tólf þúsund. Það sýnir bara hversu arfaslök launin eru.“ Snorri segir að útlit sé fyrir flótta úr stéttinni þegar tekur að ára betur í þjóðfélaginu, en forvígismenn lögreglumanna munu funda um ástandið og næstu skref á þriðjudag.- þj
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Innlent „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Sjá meira