Ákært fyrir vanrækslu sauðfjár 23. september 2011 03:15 Meirihluti fjárins var vanfóðraður að því er segir í ákæru.
Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært ábúanda á Stórhóli í Djúpavogshreppi fyrir brot á lögum um dýravernd og búfjárhald með því að vanrækja að tryggja góðan aðbúnað, meðferð og fóðrun sauðfjár á ofangreindum bæ. Ábúandanum er gefið að sök að hafa í mars 2011 haldið of margt fé í fjárhúsunum á bænum, eða 764 ær, þar sem aðeins var húsakostur fyrir 684 ær. Jafnframt að hafa vanrækt að halda fjárhúsunum þurrum þannig að for var á gólfi í hluta þeirra. Enn fremur að hafa vanrækt að rýja nokkrar ær og láta bólusetja allt að 135 ásetningslömb gegn garnaveiki. Meirihluti fjárins hafi verið vanfóðraður og ekki hafi verið leitað læknisaðstoðar fyrir veika og slasaða gripi á bænum né þeir aflífaðir. Enn fremur er ákært fyrir vanrækslu þar sem 237 gemlingum hafi ekki verið tryggt húsaskjól í apríl árið áður, heldur þeir geymdir í skjóllausum girðingum. Þá eru ábúandinn og ábúandi á Hraunkoti ákærðir fyrir vanrækslu á 70 kindum sem fluttar voru á ofangreindan bæ, án þess að veita þeim húsaskjól og fullnægjandi fóður. Aflífa varð sex ær vegna ástands þeirra. Refsingar er krafist auk banns við búfjárhaldi.- jss
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira