Sundabraut sett á ís í minnst hálfan áratug 23. september 2011 07:30 Tíu milljarðar verða settir í eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu á næstu tíu árum. Stórframkvæmdir munu sitja á hakanum. fréttablaðið7hari
Framkvæmdum við Sundabraut verður slegið á frest, að minnsta kosti næstu fimm árin. Þess í stað mun ríkisstjórnin setja einn milljarð á ári næstu tíu árin í tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að öllum stórframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu verði slegið á frest, á fyrri hluta tilraunaverkefnisins. „Við ætlum þetta sem tilraunaverkefni. Það er ekki þar með sagt að ekki verði gerðar umbætur á samgöngukerfinu á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu,“ segir Ögmundur. Spurður hvort þetta eigi einnig við um hugmyndir um að setja Miklubraut í stokk eða koma á fót mislægum gatnamótum, segir hann ekki ljóst um hvaða verkefni verði að ræða. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, hefur lengi talað fyrir lagningu Sundabrautar. Hann segir vissulega skiptar skoðanir á því að fresta henni, en eins og staðan sé nú í fjármálum ríkisins sé ekki hægt að gera nema eitt í einu. „Á árum áður var sérstaklega kallað eftir Sundabraut. Við sjáum hins vegar í skoðanakönnunum að það urðu umskipti eftir hrun og í stað þess að hún yrði efst á listanum tóku auknar almenningssamgöngur sæti hennar.“ Dagur og Ögmundur eru sammála um að efling almenningssamgangna sé kjaramál; nýlegar rannsóknir sýni að kostnaður við samgöngur sé næsthæsti útgjaldaliður heimila á eftir húsnæðismálum og hærri en matarinnkaup. - kóp /
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira